152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[16:15]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þeir flöskuhálsar sem ég vitna til hér eru auðvitað öllum ljósir sem fylgst hafa með framvindu í þessum kerfum okkar á undanförnum árum. Þeir eiga sér stað bæði á sviði rannsókna, saksóknar og síðan aftur á fullnustusviðinu. Við þessu verðum við að bregðast með heildarskoðun á öllum þessum þáttum. Ég lít á þetta sem eitt færiband sem þarf að ganga vel og afkasta sem mestu, öllum til hagsbóta. Alþingi tók virkan þátt í því skrefi með okkur um áramót þar sem mjög var mætt óskum ráðuneytisins varðandi aukin framlög inn í þessa málaflokka. Það er vel og ég er þakklátur fyrir það.

Að lagt hafi verið til aukið fjármagn til héraðssaksóknara til þess að rannsókn í þessu eina máli gæti gengið hratt og vel fyrir sig — ég veit ekkert annað en að þetta mál gangi vel fyrir sig eins og önnur mál. Ég hef bara enga innsýn inn í það, enda er ég ekki að fylgjast með einhverjum sérstökum málum heldur eru embættismennirnir að vinna eftir því sem þeir geta og ég treysti því að unnið sé eins hratt og vel og kostur er. Hyggst ég beita mér fyrir því að efnahagsbrot njóti forgangs í rannsókn og í gegnum kerfið? Nei, ekki sérstaklega. Ég tek í sjálfu sér engan málaflokk út fyrir í þeim efnum. (Gripið fram í.) Ég lít til að mynda svo á að kynferðisafbrot séu líka mjög mikilvægur málaflokkur og þar þurfi úrræða við og ég er að vinna að því. Ofbeldismál eru með sama hætti og það á reyndar við um flestöll mál, að það þarf að vinna þau hraðar og betur en kerfið okkar hefur getað gert. Ég tek efnahagsbrot ekkert út fyrir sviga þar alveg sérstaklega, en ég veit það af samtölum mínum við héraðssaksóknaraembættið að þar taka þau mál og forgangsraða þeim líka eftir mikilvægi þeirra.