almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Mig langar mig að ræða skýrslu starfshóps gegn mútugreiðslum á erlendri grundu eða mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna. Í skýrslunni frá árinu 2020 sem hæstv. ráðherra vísaði í kom fram að Ísland hefði að fullu uppfyllt tvenn tilmæli frá þessum vinnuhópi og að hluta til tvenn í viðbót en 13 stæðu eftir. Mér sýnist í fljótu bragði að þessi lög geti kannski tikkað í eitt eða tvö box í viðbót af þessum í raun 15 sem eftir standa. Stærstu athugasemdirnar sem ég sá í skýrslunni, sem ég las einmitt af mikilli athygli árið 2020, voru þær að við erum ekki með neina gagnvirka eða próaktífa, svo að ég sletti aðeins, virðulegi forseti, leið til að rannsaka mútubrot af þessu tagi. Það er ekkert frumkvæði í gangi í kringum þetta. Þar að auki eru dæmi um að mútubrot sem þessi hafi ratað inn á borð stjórnvalda og það hefur ekkert verið gert til að bregðast við þeim. Það kemur fram í þessari skýrslu.
Ég spyr því hæstv. ráðherra í ljósi þess að þessi vinnuhópur væntir svara frá Íslandi í ár hvað við erum að gera til að bregðast við þeim 15 tilmælum sem eftir standa: Verður þetta svarið, þessi litla lagabreyting, tæknilegs eðlis, sem hér er verið að leggja til eða stendur til að efla raunverulega getu yfirvalda til að takast á við brotaflokka sem þessa á Íslandi og stendur til að rannsaka þau brot sem tilkynnt voru til íslenskra yfirvalda en voru ekki tekin til skoðunar á sínum tíma?