almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Það stendur yfir vinna í því að mæta frekari tilmælum sem komu fram í þessari skýrslu, svo að það sé alveg á hreinu. Það sem hér er nefnt varðandi auknar heimildir til rannsóknar á þessum þætti brota, og það á reyndar við um aðra brotaflokka líka, þá er það bara rétt ábending að lögreglu skortir heimildir, víðtækari heimildir, til að taka mál til rannsóknar þar sem ekki er til staðar grunur um ákveðið brot. Það er eyrnamerkt slíku. Þetta er að koma upp á fjölmörgum sviðum og tengist oftast nær skipulagðri glæpastarfsemi þar sem lögreglan getur til að mynda fengið upplýsingar frá erlendum lögregluyfirvöldum um að hingað sé að koma fólk sem þyrfti að hafa eftirlit með og jafnvel starfsemi sem þyrfti að athuga en lagaforsendur eru ekki til staðar. Þessi þröskuldur hefur svo sem áður komið fram í skýrslum frá lögreglu er varða skipulagða glæpastarfsemi. Þetta hefur áður verið tekið til umræðu í þinginu en þingið hefur aldrei náð að ljúka málsmeðferð á þessu vegna þess að um það hafa verið mjög skiptar skoðanir hversu víðtækar heimildir lögregla eigi að hafa til að bregðast við í þessum málum.
Ég mun leggja fram á næstunni frumvarp sem felur í sér þessar víðtæku heimildir á breiðu sviði. Það er gríðarlega mikilvægt að þingið taki það til málefnalegrar umræðu og afgreiði það sem allra fyrst þannig að við getum verið þátttakendur á alþjóðavettvangi í upplýsingaskiptum og upplýsingaöflun. Samhliða því er augljóst að við munum auka álagið á þá fámennu deild lögreglunnar sem vinnur á þessum vettvangi og við þurfum að styrkja þá starfsemi samhliða.