almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég vil halda því til haga að hvergi í þessari skýrslu sé ég nokkur tilmæli eða ráðleggingar til íslenskra yfirvalda um að koma á fót forvirkum rannsóknarheimildum eins og ráðherra virðist hér vera að gefa undir fótinn. Það er ekki svo. Hins vegar leggur vinnuhópurinn til að lögreglan hafi mannskap til að rannsaka mál sem þessi og geti t.d. fylgst betur með eignatilfærslum og öðru til að geta stemmt stigu við mögulegum brotum á þessari löggjöf. Í skýrslunni er talað um fjögur mál sem hafi ratað inn á borð til íslenskra yfirvalda þar sem ásakanir eru um mútubrot og þar af hafi aðeins eitt þeirra, og það er Samherjamálið, verið rannsakað. Hin daga einhvern veginn bara uppi og það er ekkert gert með þau. Það kemur fram í alþjóðlegri skýrslu um Ísland að einungis hafi verið gert eitthvað með eitt af þó fjórum málum sem búið er að leggja fram. Hvernig er þetta trúverðugt, virðulegi forseti?
Í skýrslunni segir einnig að þessi vinnuhópur telji eina stærstu áskorunina fyrir Ísland vera þá trú eða einhvern veginn það viðhorf á Íslandi að svona brot fyrirfinnist ekki hér og að það sé eitt af því helsta sem standi rannsóknum sem þessum fyrir þrifum. Miðað við umræðuna sem hefur komið fram í kjölfarið á Samherjamálinu er ég hissa að árið 2020 hafi þessi sjónarmið komið svona ríkt fram í samskiptum við íslensk yfirvöld. En þetta er svo sem eitthvað sem við höfum líka séð í umræðu um peningaþvætti og annað hér. Það virðist einhvern veginn vera viðkvæðið, sérstaklega hjá íhaldssamari armi stjórnmálanna, að Ísland sé svo lítið land að við þurfum ekki hafa áhyggjur af peningaþvætti, eins og við séum einhvern veginn bara komin með ónæmi fyrir því, búin að bólusetja okkur af því að við erum svo lítil. (Forseti hringir.).
Ég spyr því hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hvað mun hann gera til þess að efla greiningargetu lögreglunnar og þá er ég ekki að tala um forvirkar rannsóknarheimildir (Forseti hringir.) heldur mannafla?