almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ekki veit ég hvaða íhaldsöfl hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er að vitna hér til. (ÞSÆ: Aðstoðarmanninn þinn.)Við skulum bara hafa það alveg á hreinu að mér kemur ekki til hugar sem einstaklingi, sem alþingismanni og sem dómsmálaráðherra annað en að hér á landi þrífist þau brot sem hér er vitnað til og mútubrot eru þar með talin, peningaþvætti alveg klárlega. Ég er einmitt að skoða alveg sérstaklega mál sem að því snúa og eru klárlega til staðar. Spurningin er hvernig við bregðumst við.
Hv. þingmaður kallar eftir því að það sé fjölgað í lögreglunni. Ég tek undir að það þurfi að fjölga í lögreglunni. Ég legg á það áherslu í undirbúningi mínum að þeim tillögum að við vitum þó hvað það er sem við erum að fá fyrir það fjármagn sem er í þessu kerfi okkar í dag. Ég er með sérstaka úttekt á því hvernig við getum nýtt betur þann mannafla sem við höfum með það að markmiði að dreifa verkefnum víðar út um land, styrkja þar með lögregluembætti þar og bæta síðan við. Það hefur verið brugðist við, eins og ég sagði áðan, af hálfu Alþingis með auknu fjármagni inn í málaflokkana sem mun nýtast okkur mjög vel. Það er verið að bregðast við því núna að Háskólinn á Akureyri geti fjölgað nemum frá og með næsta hausti í lögreglunámi. Rannsókn er nefnilega flókið fyrirbæri, alveg sérstaklega í þeim málum sem við höfum verið að nefna hér sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi og ég tala nú ekki um kynferðisafbrotamálum og ofbeldismálum. Þetta krefst mikillar þekkingar og reynslu. Þú tekur ekki fólk sem er nýkomið út úr skóla eða hefur ekki þessa reynslu, það þarf að þjálfa það upp. Þjálfunarprógramm stendur yfir í þessum málum sem öðrum.
Við erum að bregðast við þessu og við munum þurfa að leita eftir meira fjármagni (Forseti hringir.) hjá hinu háa Alþingi og ég vona að menn styðji við það. (Forseti hringir.) Þetta mun allt leiða til þess að það þýðir ekki að fjölga í lögreglunni, það verður að bregðast við því og geta þá ráðið lögreglulið til starfa. (Forseti hringir.) Ég er að reyna að gera það með skipulögðum hætti og góðri yfirsýn.