almenn hegningarlög.
Frú forseti. Stærsta einkenni mútumála hvað kerfið varðar er að þau koma aldrei bara upp í hendurnar á yfirvöldum, sá sem greiðir múturnar og sá sem þiggur þær leitast hvor um sig við að fela slóðina. Þess vegna þarf meira en bara lögin ef menn ætla sér að ná utan um mútustarfsemi. Þá þarf markvissa vinnu þeirra stofnana sem ætlað er að gæta hagsmuna almennings, hagsmuna viðskiptalífsins og hagsmuna ríkisins. Mútum er alltaf beitt til að ná fram niðurstöðu sem er óeðlileg gagnvart regluverki okkar, óeðlileg gjarnan með tilliti til hagsmuna almennings, til ná fram ákvörðun sem þjónar sérhagsmunum og getur haft í för með sér ekki bara óeðlilega niðurstöðu heldur hættulega. Þarna eru gjarnan höfð óeðlileg áhrif á ákvarðanatöku opinberra aðila.
Þær breytingar sem hér eru lagðar til skipta máli og eru jákvæðar, að mér sýnist við fyrstu yfirferð. Þær eru tímabærar og rúmlega það, enda hefur Ísland lengi legið undir gagnrýni vegna veikburða lagasetningar til að taka á brotum sem fara með þessum hætti, með mútum gegn hagsmunum heildarinnar. Lagasetningin okkar hefur lengi verið veik til að taka á þeim brotum sem einna alvarlegust þykja, ekki bara hér á landi heldur í öllu alþjóðlegu samhengi. Ríki sem tala um að verja innviði eru vakandi fyrir þessum hættum, þau eru vakandi fyrir þeim innan lands en ekki síður erlendis. Mútubrot innlendra aðila gagnvart erlendum aðilum eru smánarblettur, ekki aðeins á þeim sem múturnar þiggja á erlendri grundu heldur ekki síður á þeim sem þær bjóða. Þær eru svartur blettur á þeim sem mútunum beita og þeim sem þær þiggja. Það þarf báða aðila til að svona brot eigi sér stað og báðir aðilar eru gerendur. Brotaþolarnir í þessum málum eru almenningur og samfélagið í heild sinni. Þess vegna eiga stjórnvöld að vera aktív en ekki reaktív í þessari baráttu því að mútur eru brot sem beinast að samfélaginu öllu og eru auðvitað ein birtingarmynd spillingar.
Eins og ég nefndi í upphafi er eitt megineinkenni þessara alvarlegu brota, sem gerir þau flókin viðfangs, auðvitað sú staðreynd að aðilar málsins leggja sig markvisst fram um að fela þau. Enginn kemur til lögreglunnar með kæru, sjaldnast er það þannig. Hér hafa t.d. fjölmiðlar gríðarlega miklu hlutverki að gegna. Í því sambandi er ástæða til að minna á þau augljósu sannindi sem við þekkjum öll, og eigum alltaf að hafa í huga, að staða fjölmiðla í hverju samfélagi fyrir sig er spegill á stöðu lýðræðisins. Vegna þess að þeir sem beita mútum fyrir sig og þeir sem þiggja þær munu aldrei að eigin frumkvæði koma með þær í dagsljósið þá skiptir svo miklu máli að þær stofnanir sem fara með þessi mál hér á landi, þ.e. lögregla, ríkislögreglustjóri og ákæruvaldið, hafi ekki bara lagaheimildirnar með sér heldur líka burði til að sýna frumkvæði í því að leita að þessum brotum. Það á líka við um aðrar þær stofnanir sem sinna eftirliti og aðhaldi í þágu almennings.
Ef vinna á gegn mútubrotum meira en bara í orði með lagaákvæðum sem þessum þá þarf frumkvæðisvinnu þessara stofnana. Í því sambandi vil ég brýna hæstv. dómsmálaráðherra til verka og biðla til hans um að gleyma því ekki að lögreglan, ákæruvaldið og dómstólar eru líka innviðir. Að Samkeppniseftirlitið og Fjármálaeftirlitið verða að njóta stuðnings stjórnvalda. Þetta á sömuleiðis við um umboðsmann Alþingis. Allar þær stofnanir og embætti sem ég nefni hér eru varðmenn almennings og almannahagsmuna. Þessar stofnanir eru lykilstofnanir til að verja almenning fyrir skipulögðum brotum gegn almannahagsmunum. Þessar stofnanir eru líka innviðir.
Það er stundum óþægilegt að hlusta á hagsmunaaðila og jafnvel ákveðna stjórnmálamenn úr stjórnarliðinu tala með þeim hætti að þessar stofnanir séu fyrir. Það glittir stundum í þá sýn að það sé þægilegast í þágu einhverra hagsmuna að hafa þessar stofnanir veikar. En það þjónar ekki hagsmunum almennings og getur aldrei gert. Við sjáum dæmi af þessu nálægt okkur og nálægt okkur í tíma og svo sjáum við líka hvernig þráðurinn liggur í þessari umræðu.
Ég hef áður staðið hér, raunar margsinnis, og talað um málsmeðferðartíma í réttarkerfinu sem mælikvarða á það hvernig þessi ríkisstjórn heldur utan um þær stofnanir sem eiga að gæta hagsmuna almennings. Þetta vandamál er svo sannarlega fyrir hendi í efnahagsbrotamálum og þar verður að gera betur. Það þarf að sýna í verki að stjórnvöld standi með þessum stofnunum, af því að þær gæta grundvallarhagsmuna almennings af því að eiga skilvirkar stofnanir, og hafa burði til að geta afgreitt mál með þeim hætti og á þeim tíma að varnaðaráhrifin skili sér út í samfélagið. Þessi gagnrýni mín beinist auðvitað fyrst og fremst að Sjálfstæðisflokknum sem farið hefur með dómsmálaráðuneytið árum saman. Það hefur verulega vantað upp á að metnaðurinn sé sjáanlegur í verki til að styðja við og styrkja þessar stofnanir.
En ég vil líka beina því til hæstv. dómsmálaráðherra hversu mikilvægt það er, sérstaklega hér í dag þegar við erum að ræða um mútubrot, að skoða þennan málaflokk og kerfið sem um það fjallar heildstætt. Í nóvember 2020 voru sagðar fréttir af því að íslensk stjórnvöld hefðu fengið 18 mánaða frest til að gera úrbætur og fara í raunverulegar aðgerðir gegn spillingu. GRECO, samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, höfðu þá farið yfir stöðuna hér á landi og lagt fram tillögur. Þau töldu að þeim tillögum sem þau höfðu lagt fram hefði ekki verið mætt af hálfu íslenskra stjórnvalda og í samræmi við þörf. GRECO hefur nú og lagði þá sérstaklega áherslu á að stjórnvöld kynntu niðurstöðurnar fyrir almenningi. Þetta var í nóvember 2020. Fresturinn var til 18 mánaða. Þessi tími er að renna upp.
Haustið 2020, nánar tiltekið í október, var Ísland tekið af gráum lista FATF, alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Það er auðvitað augljóst, finnst manni, í alþjóðlegu samhengi, en Ísland er þar ekki undanskilið, að mútur, peningaþvætti og jafnvel hryðjuverk í íslensku samhengi tengjast. Það var því miður engin hending að Ísland lenti á þessum lista því að það hefur lengi legið fyrir að aðgerðir íslenskra stjórnvalda gegn peningaþvætti teljist ófullnægjandi. Að lenda á slíkum lista er ekki bara mikill álitshnekkir heldur getur það haft í för með sér sjálfstætt hættuástand. Eitt er að lenda á listanum, annað eru afleiðingar þess. Neikvæð áhrif á fjármálastarfsemi eru eitt og síðan þarf auðvitað ekki að hugsa það lengi að fréttir af veru ríkis á þessum lista draga sennilega ekki úr áhuga þeirra sem þessa brotastarfsemi stunda á að horfa til ríkisins. Menn leita þangað sem færin eru.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar þóttu ekki nægilega sterkar. Ríkisstjórnin fékk 18 mánaða frest til að taka prófið aftur, ef svo má segja, og í því samhengi þarf þá að staldra við og horfa á heildarmyndina.
Haustið 2020 gerðist það líka að þáverandi umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, lýsti því yfir á opnum fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að embættið hefði ekki burði til að sinna frumkvæðisathugunum á stjórnsýslunni. Frumkvæði þessa embættis er gríðarlega mikilvægt, að það geti að eigin frumkvæði kafað og skoðað mál, skoðað framkvæmd, skoðað lagastoð þar sem því finnst vera tilefni þess, í stað þess að taka bara við þeim málum sem til þess koma. Það er auðvitað mikilvægt að almenningur hafi umboðsmann til að leita til, en ef það fyllir alla hans dagskrá og hann getur aldrei að eigin frumkvæði farið af stað þá stendur embættið einfaldlega ekki alveg undir nafni. Umboðsmaður lýsti því að vegna manneklu og verkefnaþunga gæti embættið ekki sinnt því að skoða mál að eigin frumkvæði. Ég lít svo á að hann hafi þar með orðum sínum verið að lýsa því yfir að embættið gæti ekki að fullu leyti sinnt verkefnum sínum, sinnt hagsmunagæslu í þágu almennings vegna þess að stjórnvöld styddu ekki við embættið. Þannig stefna vinnur einfaldlega gegn fólkinu í landinu.
Aðhalds- og eftirlitshlutverk umboðsmanns er gríðarlega mikilvægt. Ef umboðsmaður er í þeirri stöðu að geta ekki tekið upp mál að eigin frumkvæði er trúverðugleiki embættisins í hættu. En það er þá líka trúverðugleiki stjórnvalda. Þannig að það hefur mikla þýðingu að gera betur hér og líta á það frumvarp sem hér er til meðferðar í dag, og ég vil hrósa hæstv. dómsmálaráðherra fyrir það, í samhengi við stöðu þeirra stofnana sem ættu að fást við verkefni sem þessi.
Hér er komið fram mál sem mér sýnist bæta regluverkið sjálft. Fram kemur í greinargerð að það er samið til að hægt sé að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar um mútur í alþjóðlegum viðskiptum og skýrslu vinnuhóps frá desember 2020 í tilefni af fjórðu úttekt hópsins á Íslandi um framkvæmd Íslands á samningi um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum. Samningurinn er ekki alveg nýr. Hann var fullgiltur af hálfu Íslands 1998 og öðlaðist gildi 1999. Vinnuhópur OECD um mútur í alþjóðlegum viðskiptum, sem hefur það hlutverk að fylgjast með framkvæmdinni, fylgjast með innleiðingunni, hafði flaggað því um nokkurt skeið til Íslands að hér þyrfti að skerpa á lagaumgjörðinni. Úttektin laut þó fyrst og fremst að getu og hæfni stjórnvalda til að koma upp um brot sem varða mútugreiðslur til erlendra, opinberra starfsmanna, sem sagt með rannsókn eða saksókn. Og vitaskuld, ég ætla ekki að gera lítið úr því, er lagaumgjörðin grundvallarpunktur þar um en líka upphafspunktur. Það er áhugavert að fram kemur í greinargerðinni að í skýrslunni hafi vinnuhópurinn lýst yfir áhyggjum af því að íslensk stjórnvöld hafi enn ekki lokið rannsókn á einu einasta sakamáli sem varðar mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna, ekki einu einasta.
Ég ætla að ljúka máli mínu á því að ítreka að ég fagna þessu máli. Ég vil líka ítreka að þessi mál koma ekki fram í dagsljósið nema vegna þess að einhver segir frá þeim eða einhver fær upplýsingar í hendur. Það þarf frumkvæði og sterkar stofnanir sem hafa tíma til að geta unnið að þessum málum. Þess vegna verður svona lagaákvæði þögult í reynd ef ekki fylgir með hugmyndafræði og forysta af hálfu hæstv. ráðherra um að glæða þetta ákvæði lífi. Það getur hæstv. ráðherra gert með því að styðja við þær stofnanir sem fá nú þetta verkfæri í hendurnar. Þannig getur hæstv. ráðherra tekið stöðu með hinum samfélagslegu hagsmunum sem eru undir.