152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[16:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu og virkilega góða yfirferð á því sem ég hef gjarnan kallað að grafa undan getu eftirlitsstofnana á Íslandi til að sinna hlutverki sínu í almannaþágu. Það er eitthvað sem ég hef séð ágerast í tíð þessarar ríkisstjórnar og fyrirrennara, sem er í raun sama ríkisstjórnin, með endurteknum atlögum og undangreftri gagnvart getu sjálfstæðra eftirlitsstofnana sem við höfum til að sinna sínu hlutverki. Og af því að við erum að tala um erlend mútubrot þá kemur Samherjamálið að sjálfsögðu upp í hugann og sú staðreynd að a.m.k. stór hluti af því máli tafðist um að lágmarki hálft ár, að því er ég best veit, vegna sameiningar á embætti skattrannsóknarstjóra og Skattinum án þess að verkferlar lægju fyrir um yfirfærsluna á verkefnum á milli stofnana. Það var rosalegur flýtir við að koma þessari sameiningu í gegn fyrir kosningar, fyrir sumarfrí þingsins, og ekki gert ráð fyrir verklagsreglum til að tryggja öryggi þeirra mála sem flytjast áttu á milli stofnana sem þýddi að stór angi af Samherjamálinu sat pikkfastur vegna þess að ekki var hægt að færa verkefnin á milli stofnana. Ég velti því fyrir mér, vegna þess að hv. þingmaður hefur reynslu úr starfi sem saksóknari, hvernig það horfi við henni að vita af því að svona stórt mál sitji í raun pikkfast einfaldlega vegna þess að það vantar einhverjar leiðbeiningar, einfaldlega vegna þess að ríkisstjórnin tók sig til og ákvað (Forseti hringir.) að sameina stofnanir án þess að hafa nokkurt plan um hvernig færi fyrir málunum sem voru hjá þessum stofnunum.