almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég vil þakka góða spurningu frá hv. þingmanni. Ég ætla að tala áfram um nauðsyn þess að hin pólitíska forysta styðji við þessar stofnanir og vitaskuld á aldrei í breytingastjórnun að standa þannig að verki að það skapi óþarfa rót. Við sjáum það nú síðast í 2 milljarða kr. ráðherrakaplinum en afleiðingar hans og áhrif eru að það er mikill hægagangur í stjórnsýslunni allri. Almennt séð hef ég trú á þeim stofnunum sem ég nefndi í ræðu minni, þar er unnið af heilindum og ég veit líka að þar vinnur fólk með fangið fullt. Það er hlutverk stjórnvalda að standa með þessum stofnunum í þágu almennings alls og svona rask, eins og þingmaðurinn nefnir, er auðvitað ekki heppilegt.