almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég spurði um þetta sérstaklega út af málsmeðferðartímanum og áhrifunum sem svona rask, hálfs árs töf, mun hafa á afdrif málsins sjálfs. Það var hluti af ástæðunni fyrir að ég spurði um þetta. En ég hlýt auðvitað að taka undir með hv. þingmanni um mikilvægi pólitískrar forystu og mikilvægi stuðnings hins opinbera við eftirlitsstofnanir sem starfa í þágu almennings í landinu og finnst mjög grátlegt að horfa upp á fjárskortinn sem þessir aðilar búa við og stuðningsleysið sem þeir búa við. Ég upplifi þetta í raun sem aðför að eftirlitsstofnunum. Hv. þingmaður nefndi að hún teldi að stjórnarliðum þætti þessar stofnanir oft vera fyrir. Ég velti fyrir mér: Fyrir hverjum nákvæmlega?