almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og athugasemdina um málsmeðferðartímann því hann er mikið til umræðu í samfélaginu í dag og mjög í samhengi við kynferðisbrotamálin. Þó er það nú staðreynd, þótt ekki sé mikið um hana rætt af því að efnahagsbrotamálin fá kastljós fjölmiðlanna síður á sig, að þetta er mikið vandamál í þeim málaflokki. Þetta eru þungar og flóknar rannsóknir þar sem fólk verður að geta haft tíma til að setja sig allt inn í málin og upp á það vantar einfaldlega vegna þess að það vantar fólk. En ég er sammála hv. þingmanni í því, og ég nefndi það sérstaklega, að það má ekki gerast. Eitt er að hagsmunaöflin tali með þeim hætti, að eftirlitið sé fyrir. En það má aldrei gerast af hálfu stjórnmálanna því að eftirlitið þjónar hagsmunum okkar allra.