152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[16:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég vann á árum áður við gæðaeftirlit í tölvufyrirtæki. Þar snerist starf ýmissa í rauninni um fylgjast með því hvort farið væri eftir reglunum eins og þær gengu og gerðust þar innan borðs. Mikið af þeirri vinnu snerist um að fylgjast með ákveðnum flöggum. Gerist eitthvað ákveðið? Er einhver ákveðin millifærsla eða kaup eða sala eða ýmislegt svoleiðis sem veldur því að það þarf einhverja rannsókn? Maður hefur heyrt sögur af því t.d. fyrir hrun að þá hafi slíkar sjálfkrafa tilkynningar borist með faxi til lögreglunnar þar sem einn starfsmaður sá um að taka þær úr faxvélinni og skrá í málaskrá og koma þeim áfram og svoleiðis. Svo einhvern tímann í sumarfríi þegar enginn var að sinna því þá kláraðist pappírinn og það var ekkert prentað út og voða gaman. Síðan þegar komið var aftur eftir sumarfrí var heill bunki af málum sem tengdust hruninu, því að þetta var nokkurn veginn akkúrat í kringum 2008. Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki eðlilegt að það séu sumir opinberir starfsmenn eða embættismenn sem hafi ákveðna stöðu sem er fylgst með með virkum hætti ákveðinnar áhættu vegna, vegna múta eða mögulegra hagsmunaárekstra. (Forseti hringir.) Væri ekki eðlilegt að beina athyglinni að einhvers konar svoleiðis (Forseti hringir.) sjálfvirkri eftirlitsstarfsemi með viðkvæmum aðilum?