152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[16:49]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka spurninguna. Ég held varðandi þessi brot að af því að orðin eru svo stór, mútur og spilling o.s.frv., þá sé það sjálfstætt hættuástand að líta svo á að í fámennu samfélagi eins og Íslandi geti svona ekki hent. Með því er náttúrlega andvaraleysið algjört. Ég ætla að játa að ég þekki ekki til þess sem hv. þingmaður er að spyrja um en ég stóð þó í þeirri trú að af hálfu lögreglunnar væru einhverjir bara starfs síns vegna sem þyrftu að uppfylla eða svara einhverjum spurningalistum. Ég játa að ég þekki ekki nægilega vel hvort þetta sé reyndin og ætla held ég ekki að úttala mig neitt frekar um það.