almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég held að það sé þannig. Það er þannig um ákveðna aðila í fjármálageiranum. Það er þannig um þingmenn, það er skráningarskylda á dómurum o.s.frv. Svo er hitt annað mál hvernig eftirfylgni er með þeirri upplýsingagjöf. Ég játa að ég þekki ekki til fulls hvernig það er. En af því að þú nefndir mútubrotin, sem eru auðvitað alvarleg ógn við samfélagshagsmuni heildstætt, þá er ákvæðið þannig að það reynir að ná utan um alla þá þætti sem svona brot geta átt sér stað í samhengi við, ekki bara með greiðslu heldur líka aðrar birtingarmyndir þess, að reyna að ná fram t.d. ákvarðanatöku með óeðlilegum inngripum, gjöfum, gjaldi, ég man ekki hvernig það er allt saman upp talið. En það er einmitt þannig í íslensku samfélagi í dag að það er upplýsingaskylda á ákveðnum aðilum sem þykja vera í þeirri stöðu starfs síns vegna.