152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[16:53]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar aðeins að fá að leita í visku hv. þingmanns þar sem þingmaðurinn hefur verið í rannsóknum á málum og öðru slíku. Nú er það fyrst 2013, ef mér sýnist rétt, sem bent er á að það þurfi að gera þessar breytingar. Þá er í skýrslu OECD bent á aðlaga þurfi a.m.k. það sem er í 3. gr. laganna og jafnvel líka það sem er í 2. gr. frumvarpsins. Það er dálítið merkilegt að það skuli hafa tekið næstum því áratug að bæta þessu við, að skrifa þau 116 orð sem þetta frumvarp er, til þess eins að fá betri vörn gegn mútum gegn erlendum aðilum.

Mig langar að koma með tvær stuttar spurningar varðandi þetta: Telur hv. þingmaður að það að við lentum á þessum válista hafi loksins verið það spark sem íslenska ríkið þurfti til að gera eitthvað í þessum málum? Hins vegar langaði mig að spyrja hv. þingmann hvort hún viti hvort dæmt hafi verið eftir þessum greinum, hvort sem er innan lands eða erlendar mútur.