152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[16:55]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ef maður les greinargerðina þá sýnist manni að það hafi verið farin af stað vinna fyrr en akkúrat í dag þegar þetta frumvarp er að birtast. Ég ætla að gefa hæstv. dómsmálaráðherra og ráðuneytinu það. Það breytir því ekki að þetta hefur tekið langan tíma. Þessi lagabreyting er í sjálfu sér ekki flókin, lýtur að fyrningu, hærra refsihámarki o.s.frv.

Hin spurningin var hvort dæmt hefði verið eftir þessum ákvæðum. Það þekki ég ekki. Mér er a.m.k. ekki kunnugt um að svo sé. Eftir stendur auðvitað þessi umsögn í greinargerðinni sjálfri um hver staðan er við rannsóknir mála. Það bendir ekki til að svo hafi verið eða að mikið sé í gangi. Ég ætla að leyfa mér aftur að benda á varðandi stöðu og styrkleika kerfisins, þá í mannafla og fjármunum talið, að við vitum það auðvitað öll, og þurfum ekki að fylgjast mikið með pólitík til að vita það, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengstum verið með þetta ráðuneyti.