almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Svo að ég haldi áfram með svörin við fyrri spurningu hv. þingmanns þá, eins og ég nefndi, kom það fram í greinargerðinni að vinnuhópurinn hefði lýst yfir áhyggjum yfir þeirri stöðu að íslensk stjórnvöld hefðu enn ekki lokið við rannsókn á neinu sakamáli varðandi mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna. Hæstv. forsætisráðherra var með mál í fyrra, eða hvort það var fyrir tveimur árum, sem tók á þeim þáttum sem hv. þingmaður er að spyrja um. Þar held ég að tekist hafi nokkuð vel til. Hitt er síðan að skapa þær aðstæður að traust sé fyrir hendi hjá fólki úti í samfélaginu um að það sé í reynd gerlegt að uppljóstra um mál með þeim hætti. Þar erum við aftur komin inn á samfélagslegar breytur; hvernig er umræðan, hvernig er þolið í samfélaginu fyrir því þegar risið upp gegn sterkum aðilum, hver er staða fjölmiðla o.s.frv.? Þetta þarf allt saman að spila saman.