almenn hegningarlög.
Virðulegi forseti. Hér er ansi merkilegt mál á ferðinni og ég tel mig knúinn til að koma í ræðustól þar sem fyrr á starfsferli mínum var ég að vinna í málum tengdum þessu eða nánast algjörlega sömu málum. Það var þegar ég var að vinna hjá Fjármálaeftirlitinu en þá tók ég þátt í þriðja mati FATF, Financial Action Task Force, á stöðu Íslands varðandi peningaþvætti. Hér er vitnað til OECD um mútur í alþjóðlegum viðskiptum og vinnuhóps varðandi mútur og frumvarpinu er ætlað að vera svar við tilmælum þess vinnuhóps, Working group on bribery.
Ég vil byrja á að taka það fram að það er gríðarlega mikið af ákvæðum í hegningarlögunum sem eiga sér uppruna með svipuðum hætti og koma fram í þessu frumvarpi, eiga sér erlendan uppruna. Peningaþvættislöggjöfin og svo þessi löggjöf og fleiri ákvæði koma úr alþjóðasamstarfi. Síðan er Ísland metið, hvernig það er að standa sig. Það er alveg gríðarlega mikilvægt að íslensk stjórnvöld, og ég vona að hæstv. ráðherra taki það til sín, að Ísland standi sig í þessu mati. Oft er talað um að vera best í heimi og annað slíkt hér heima við en það er grundvallaratriði að við stöndum okkar. Það er tiltölulega auðvelt tel ég að geta staðið sig, orðið „best in class“ á þessu sviði, og það þarf að fylgja þessu vel eftir.
Þegar ég var í peningaþvættismálunum kom út skýrsla árið 2006, ég var að vinna í eftirfylgninni, ég var reyndar hættur störfum, og hún endaði á því að Ísland lenti á svörtum lista. Þetta sýndi algeran stjórnsýslubrest svo að ekki sé meira sagt. Þetta voru tiltölulega einföld mál en maður fór að hugsa hvort þetta væri ekki að ná í gegn á æðstu stigum bara af því að það var erlendis. Þetta var algerlega með ólíkindum. Orðspor Íslands er í algjörri rúst varðandi peningþvættismál þó svo að við séum komnir af þessum lista þar sem eru Írak, Afganistan og fleiri slík ríki sem eru nánast ekki með stjórnkerfi. Þegar er komið út fyrir landsteinana er alla vega mjög mikið horft á þessi mál. Þannig að þetta er alveg tilefni til þess að fara í mikla umræðu og stjórnkerfið ætti að taka það sem algjört forgangsmál að fylgja eftir öllum tilmælum sem koma að utan varðandi hegningarlög og aðra löggjöf.
Varðandi þetta frumvarp sérstaklega þá vek ég athygli á því að mér finnst það sérstakt af því að í 2. gr. er breyting á 109. gr. almennra hegningarlaga en þar er verið að hækka refsistigið úr fimm árum í sex ár, fangelsi úr fimm árum í sex ár. Það ákvæði er um mútur sem lúta að opinberum starfsmönnum. Þessi samningur sem vitnað er til, OECD-samningurinn, er gerður að frumkvæði Bandaríkjanna eins og kemur fram í frumvarpinu, samningur um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum, saminn á vettvangi OECD að frumkvæði Bandaríkjastjórnar. OECD er svona klúbbur ríkra þjóða í heiminum. Þarna lofa þær þjóðir sem eru í OECD þróunarríkjum því að þær ætli að fara að refsa viðskiptamönnum sem bera mútur á erlenda opinbera starfsmenn. Þá var m.a. 2. mgr. 109. gr. breytt. Ég hefði talið rétt — og ég veit að þetta er lagatæknilegt — að ákvæðið væri þar í heild, að það væri eitt ákvæði. Núna er búið að splitta þessu upp. Nú er verið að taka líka fram varðandi fyrirtæki í opinberri eigu að um þau sé fjallað í 264. gr. a. Ég tel miklu betra að hafa það allt í einni grein sem lýtur að mútum til erlendra opinberra starfsmanna, hvort sem það eru fyrirtæki í opinberri eigu, og það eru að sjálfsögðu alltaf einstaklingar þar á bak við, eða þá erlendir starfsmenn. Mér finnst ekki rétt að dreifa þessu á tvo staði en fólk getur haft sína skoðun á því.
Það var minnst á það í ágætri ræðu áðan hjá hv. þingmanni að það kemur fram að vinnuhópurinn hafi átt fund í desember 2020 þar sem skýrsla um Ísland var samþykkt sem liður í fjórðu úttekt vinnuhópsins hér á landi. Hún laut fyrst og fremst að getu og hæfni stjórnvalda til að koma upp um brot er varða mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna og rannsaka þau og saksækja. Þau hafa því áhyggjur af hæfninni og getunni. Það er alveg grundvallaratriði að þekking og hæfni sé búin til hjá þeim embættum sem sjá um þessi mál og þá hjá embætti héraðssaksóknara, að hann verði efldur til að taka á þessum málum. Ég get ekki annað en leyft mér að vísa til skýrslunnar eins og kemur fram í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Í skýrslunni lýsir vinnuhópurinn áhyggjum af því að íslensk stjórnvöld hafi enn ekki lokið við rannsókn á einu einasta sakamáli er varðar mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna.“
Nú vitum við öll að það er mál í gangi hjá lögregluyfirvöldum sem lýtur að mútugreiðslum í Namibíu. Það er búið að vera í nokkur ár til vinnslu og ég veit að hæstv. ráðherra hefur heimild í sakamálalögunum til að óska eftir upplýsingum um stöðu þess máls eins og annarra sakamála. Að það mál skuli enn þá vera í rannsókn og ekki lokið — og það getur vel verið að það sé einhver skattahluti, ég þekki það ekki eins og kom fram hér áðan, en þá er bara að kljúfa hann frá. Það hefur verið gert í fleiri málum, Baugsmálinu og fleiri málum, Byrgismálinu. Þá er skattahlutinn klofinn frá og refsimálið tekið í tveimur bútum, þ.e. sitthvor heimildin. Að við séum enn þá með þetta mál í gangi smitar svo út frá sér. Það grefur undan trausti almennings á stjórnvöldum að það sé ekki búið að ljúka því eða a.m.k. að upplýsa almenning um hvar það er statt og af hverju það taki svona langan tíma. Þetta er algert grundvallaratriði. Það að múta erlendum opinberum starfsmanni er algjörlega 101 í mútugreiðslum og spillingu í heiminum. Þetta er inngangskúrs, algerlega. Þess vegna var þessi samningur gerður af OECD á sínum tíma. Það er náttúrlega sorglegt að eitt stærsta og öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins skuli hafa lent í svona máli. Ég þekki það bara sjálfur varðandi allt svona að þar sem verður álitshnekkir hjá erlendum stórfyrirtækjum þarf að klára málið sem fyrst og svo heldur lífið áfram. Það virðist eitthvað annað vera í gangi hér á Íslandi. Þannig að þetta er alveg grundvallaratriði.
Varðandi frumvarpið í heild þá tel ég það mikilvægt og þessar athugasemdir sem ég hef hér komið með. Ég vonast til að það fái góða meðferð í nefnd. Það er ýmislegt að skoða hvað þetta varðar og líka það að það er ekki nægjanlegt að koma bara með lögin, það verður líka að efla rannsóknarstigið og þekkingu á þessum málum. Ég hef tekið þátt í rannsóknum er lúta að spillingarmálum erlendis. Þau eru flókin og löng. Það þarf að senda svokölluð „letters rogatory“ milli landa, sem er ákveðið vandamál, til að fá upplýsingar. Þetta er samvinna við erlend lögregluyfirvöld líka. En það er annað sem er líka vandamál og það eru aflandseyjarnar varðandi fyrirtækjaeign og annað slíkt. Það væri mjög fróðlegt að taka umræðu um það og vonandi frumvarp sem lýtur að því þegar lögaðilar eru stjórnaraðilar í þessum fyrirtækjum og enginn veit hver á hvað. Eitt af þeim málum sem setti Ísland á svarta listann eða lista ósamvinnuþýðra var að við vorum ekki með nægilega skýra löggjöf um raunverulega eigendur á fyrirtækjum.
Varðandi það sem lýtur að mútubrotum þá er peningaþvættisákvæðið þarna á undan, í 264. gr., og það er náttúrlega algjört grundvallarákvæði. Við erum búin að laga löggjöfina þar og efla þarf þann málaflokk enn frekar. Litla Ísland á að geta gert þessi mál með mjög góðum hætti. Sagan sýnir að við höfum sennilega verið með eitt mesta klúður á Vesturlöndum þegar við lentum á lista yfir ósamvinnuþýð ríki, sérstaklega þegar við getum staðið okkur mjög vel í þessu. Við skulum ekki vera að tala um Ísland sem best í heimi á nokkurn hátt fyrr en við stöndum okkur vel þegar kemur að svona úttektum og ég tala nú ekki um eftirfylgnina. — Ég hef ekki fleiri orð um þetta að sinni og þakka fyrir.