152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir áhugaverða ræðu um einmitt FATF og það mál sem við erum að glíma við núna. Hv. þingmaður nefndi að hann hefði verið að vinna að vissum málum hvað þær skýrslur varðar á árum áður. Það væri, held ég, gott að fá á skipulagðan hátt fram umfang svona mála í samanburðarlöndum við sig. Ég veit ekki til þess að við séum með neitt rosalega miklar rannsóknir á þessu. Eins og hv. þingmaður nefndi þá hefur ekki eitt mál verið klárað hér á landi. En hvernig er samhengi okkar í þessu og hvernig liggja þessar ábendingar að okkur, ekki bara varðandi þessar beinu „kvikmyndamútur“ heldur líka allar aðrar tegundir greiðastarfsemi sem má líka flokka sem mútur? Hæstv. ráðherra kallar þetta tæknilegt mál. En hluti af því að skilja hvernig það er tæknilegt er að skilja umfangið og bakgrunninn í málinu. Af hverju er verið að laga þetta á þennan tæknilega hátt? Hvað var það sem veldur kannski vandamálum varðandi einstök mál í fortíðinni sem gefur tilefni til þess hér á landi að bregðast við þeim á einhvern hátt? Eða erum við bara að innleiða eitthvað sem er dæmi um annars staðar? Það eru svona grundvallaratriði þarna á bak við.