almenn hegningarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Tæknilegt eða ekki tæknilegt mál. Þetta er auðvitað alþjóðlegt samstarf. Íslenskt ákæruvald og lögregluyfirvöld taka þátt í alþjóðasamstarfi þar sem settir eru ákveðnir standardar eins og FATF, Financial Action Task Force, og sett tilmæli. Þessi tilmæli fara inn í ESB-reglurnar og þaðan koma þau inn í íslensk lög. Þá er spurningin: Hvernig innleiðum við lögin og höldum við uppi þeim standördum sem settir eru í upphafi? Þá koma athugasemdir og árið 2006 var markmiðið að ná einkunn Norðurlandanna. Okkur tókst það. Kannski voru þær einkunnir á þeim sviðum sem voru kannski ekki eins mikilvæg og önnur, við þurftum að bæta okkur varðandi raunverulegan eiganda, gera það sterkara, það er algjört kjarnaatriði. Við þurftum að bæta við peningum til skrifstofunnar í þessu algjöra kjarnaatriði. Það eru allir af vilja gerðir innan kerfisins sem er að vinna að þessum málaflokki, Ísland, litla lokaða Ísland, við fáum leiðbeiningar að utan og það er bara alveg frábært. Þetta er skemmtileg vinna að mörgu leyti. Þú kynnist starfsfólki og fólki erlendis og það verða ákveðin samskipti, „international community“, ef má segja. Ísland mætti taka miklu meiri þátt í þessu og það eru gríðarleg tækifæri fyrir Ísland að taka þátt í þessu starfi. Fólk að fara á Working Group-fundi og svoleiðis. En á Norðurlöndunum hafa bankar lent í alvarlegum peningaþvættismálum. Það er tekið á þeim af mikilli hörku af yfirvöldum. Yfirmaður Danske Bank var settur í gæsluvarðhald o.s.frv. 13% af hagnaði bankans kom frá litla Íslandi út af peningum frá Rússlandi. Okkar saga er náttúrlega svolítið merkileg því að við stofnum embætti sérstaks saksóknara. Þökk sé Evu Joly, sem kom hérna og ég man að við kölluðum hana gullgæsina þegar hún kom í Kastljós, því að hún setti pólitíska pressu á að settir yrðu alvörupeningar í málaflokkinn þannig að það embætti varð kröftugt. En það hefur ekki komið fram neitt mat á hvernig það gekk. Það er alveg geta til að standa vel að málum. Ég lít ekki svo á að þetta sé rosaleg spillt kerfi eða neitt svoleiðis. Hvítflibbaglæpir eru mjög alvarleg brot og mikilvægt að taka á þeim með hraða, ég tala ekki um þegar um er að ræða lykilfyrirtæki í samfélaginu eins og málið sem ég nefndi áðan. Það er alveg grundvallarmál að klára það mál, það spillir svo út frá sér.