152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er einmitt lykilatriðið, að þarna séu jú reglurnar mjög skýrar og greinilegar og uppfylli alla þá staðla sem við miðum við þannig að það sé auðvelt að greina það hvernig tilfærslur á milli landa eru undir sama regluverki o.s.frv. til að ekki sé hægt að fela sig á einn hátt hérna og á annan hátt þar og þá eru engin lög brotin þó að þau séu brotin á víxl í rauninni, að þá hefur maður einmitt áhyggjur af því að framfylgja lögunum því að, eins og hv. þingmaður nefndi hérna varðandi sérstakan saksóknara eftir hrunið, það embætti var gríðarlega vel eflt, að það var grafið undan því embætti áður en rannsókn á stærstu málunum klárast. Það hlýtur að vera rosalega skrýtin tímasetning. Við sjáum það eftir uppljóstranir vegna Samherja að þetta eru mál sem eru búin viðgangast í fjöldamörg ár en ekkert flagg hefur komið upp á Íslandi. Við þurftum að fá flaggið frá Afríku. Þá spyr maður óhjákvæmilega, sérstaklega þegar sérstakur saksóknari óskar eftir viðbótarfjárheimildum — því að ef hann á að sinna þessu máli vel þá getur hann ekki sinnt öðrum nema með meira fjármagni og þá fær hann það ekki heldur er búin til einhver tilfærsla og sameining og það glatast dálítið inni í öllu kraðakinu hvort í raun og veru sé hægt að sinna öllum málum, sérstaklega hvítflibbamálum, á viðeigandi hátt. Þannig að maður spyr sig: Er þetta tæknilegt vandamál sem við erum að glíma við hérna eða er þetta gegnumgangandi vandamál?