152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:16]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna svarið. Er þetta tæknilegt eða er þetta er viðvarandi vandamál? Ég tel að það sé viðvarandi vandamál að löggæsluyfirvöld og saksóknaraembætti séu ekki nægilegar fjármögnuð. Það þarf að byggja upp þekkingu, það þarf að byggja upp frumkvæðisréttinn. Þau eru að drukkna í málum og það raunverulega alltaf verið að moka skurðinn. Þannig að það þarf að fjármagna þetta meira og gera þessum málaflokki hærra undir höfði hjá fjárveitingavaldinu. Það var stofnað Félag ákærenda, það þarf líka að efla sýnileika ákærenda í samfélaginu, saksóknaranna sem taka ákvarðanir um ákveðin mál. Við getum líka séð þetta í kynferðisafbrotamálum, efnahagsbrotum, að það þarf að vera aukinn sýnileiki.

En varðandi þetta sérstaka mál þá er þetta alþjóðleg samvinna sem Ísland hefur staðið sig illa í. Það er alveg klárt mál. Við vorum á lista ósamvinnuþýðra ríkja í nokkur ár þannig að við höfum ekki staðið okkur í alþjóðasamvinnunni. Þetta er merkileg og mikilvæg alþjóðasamvinna fyrir litla Ísland. Við erum að fá mjög mikla þekkingu þarna inn. Ég get tekið dæmi; hugtakið peningaþvætti var búið til árið 1991 eða 1992 þegar fyrsta peningaþvættistilskipunin kemur til landsins. Og þegar ég var með fyrirlestraherferð upp úr 2006 með „follow up-ið“, eftirfylgnina, þá vissu menn ekkert hvað peningaþvætti var. Peningaþvætti? Þetta varðar okkur ekkert. Svo voru náttúrlega bankar hérna, þetta voru alþjóðlegir bankar. Þetta er eins og vatnið, peningar leita hvert sem er. Peningaþvætti, sektir sérstaklega geta stundum verið það lágar að það skiptir ekki máli. Þess vegna eru komnar veltusektir og annað slíkt til að þær bíti. Það er bara ótrúlegt að ákvæðinu skyldi hafa verið breytt um veltusektina varðandi fjarskiptafyrirtæki. Þetta er sú kynslóð sekta sem er að koma, þannig að kerfið þarf að geta tekið á þessum málum, rannsakað og ákært í þeim og svo þurfa sektirnar að bíta líka.