152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:20]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál. Það er uppfylling á alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, hvernig við tökumst á við mútubrot á alþjóðlegum vettvangi. Það er margt í þessu máli, virðulegi forseti. Það sem er undir hér eru tilmæli sem voru sett til íslenskra stjórnvalda árið 2010, virðulegur forseti. Af þeim 17 tilmælum er búið að uppfylla tvenn síðan árið 2010. Síðan þá eru komin 12 ár. Þetta eru þrjú kjörtímabil, í eðlilegu árferði svo sem, þau eru búin að vera fleiri.

Hér er verið að bregðast við mjög mikilvægum þætti í þessum tilmælum, það er alveg rétt, það þarf auðvitað að vera hafið yfir allan vafa að það að múta starfsmönnum hjá opinberum fyrirtækjum sé án nokkurs vafa refsivert. Það er auðvitað mjög mikilvægt og það er líka mikilvægt að uppfæra refsirammann eins og kemur fram í þessum tilmælum. En það er ýmislegt annað sem ég klóra mér í hausnum yfir, t.d. að í öll þessi 12 ár hafi ekki verið gripið til neinna aðgerða til að bregðast við þessum tilmælum.

Hluti af því er í raun viðbrögð til að tryggja að þróunaraðstoð sem Ísland veitir sé ekki misnotuð, t.d. í þeim tilgangi að múta erlendum opinberum starfsmönnum. Það kemur fram í þessari skýrslu að þetta séu ein af tilmælunum, að fara í fræðslu gagnvart þeim aðilum sem sinna þróunaraðstoð til að fræða þá um merki þess að verið sé að greiða mútur og tilkynningarskyldu þeirra til opinberra aðila á Íslandi gagnvart slíkum grun um brot. Þetta voru tilmæli til Íslands árið 2010. Mikið hefði verið gott að það hefði verið búið að uppfylla þetta áður en Samherjamálið kom upp, þar sem við vitum, við höfum mikil gögn sem sýna fram á að íslensk þróunaraðstoð var í raun misnotuð til þess að arðræna Namibíu. Þetta eru ein af þessum tilmælum sem voru ekki uppfyllt fyrir 12 árum.

Mikið af þessu snýst um fræðsluátök, að fræða opinbera starfsmenn, að fræða endurskoðendur, að fræða alla þá sem vettlingi geta valdið í baráttunni gegn þessum brotum, um hvers beri að líta til, um tilkynningarskylduna og um verklagið í kringum svona brot, einfalda fræðsluskyldu. Þar, virðulegi forseti, eru öll tilmælin óuppfyllt, tilmælin frá 2010. Það hefur ekki verið farið í neitt sérstakt fræðsluátak til að bregðast við brotum sem þessum alveg frá því að okkur var bent á að það skorti tilfinnanlega á fræðslu um tilkynningarskyldu, um merki um mútubrot og fleira þvílíkt, ekki neitt. Þetta er allt óuppfyllt og ekki að sjá að einhver vinna sé í gangi við að uppfylla það fyrir næstu skýrslu sem er 2022, árið í ár, 12 árum seinna. Það er auðvitað merkilegt í sjálfu sér, virðulegi forseti, að við höfum nákvæmlega ekkert lagt upp úr því að tryggja að þeim sem ber að fylgjast með brotum af þessu tagi — þeir hafa ekki einu sinni verið upplýstir um það hlutverk, hafa ekki einu sinni fengið neina fræðslu.

Það er auðvitað stórkostlega glatað, virðulegur forseti, og vekur upp stórar spurningar um hversu metnaðarlaus við erum á þessu sviði. Þetta er rétt eins og með peningaþvætti, hvers vegna við lentum á gráum lista hjá FATF. Það var vegna þess að það var nákvæmlega engin vinna og engir fjármunir settir í að fylgjast með peningaþvætti á Íslandi. Því var í raun haldið fram blákalt að peningaþvætti færi ekki fram á Íslandi vegna þess að engar tilkynningar um slíkt hefðu borist. En við vorum ekkert að fylgjast með þannig að hvernig í ósköpunum hefðum við átt að finna dæmi ef við vorum ekki að fylgjast með? Það er nákvæmlega sama með erlend mútubrot þar sem við höfum meira að segja skjalfest dæmi, þrjú skjalfest dæmi af málum sem hafa komið inn á borð þar til bærra yfirvalda sem ekkert hefur verið gert með. Það er í þessari skýrslu. Komið hafa þrjár tilkynningar um mútubrot og yfirvöld hafa ekki einu sinni brugðist við, þau hafa ekki opnað rannsókn, þau hafa ekki gert neitt með það.

Þetta er auðvitað í eðli sínu frekar undarlegt, virðulegi forseti, þannig að þrátt fyrir að það sé fagnaðarefni að verið sé að taka af allan vafa um að það að múta starfsmönnum opinberra fyrirtækja sé alveg jafn bannað og að múta ráðherrum, skulum við segja, í öðrum löndum er þetta auðvitað alls ekki nóg. Það er vöntun á skilningi í kerfinu hér á mikilvægi þess að vera með vel þjálfaða lögreglu, vel þjálfað yfirvald sem getur sinnt þessu eftirliti. Hæstv. ráðherra talaði áðan í andsvari við mig um að það væri auðvitað ekki hægt að taka lögreglumenn sem eru nýkomnir úr námi og setja þá í efnahagsbrotadeild eða setja þá í að fylgja eftir lögum sem þessum. Nei, en það hefði verið hægt fyrir tíu árum. Þá værum við kannski komin á betri stað núna, eða fyrir 12 árum, þá birtust þessi fyrirmæli.

Ég velti fyrir mér varðandi þessi 12 ár hvar valdið yfir þessum málum hefur legið, gott ef það hefur ekki legið nokkurn veginn óslitið, með kannski mjög stuttri undantekningu, hjá flokki hæstv. dómsmálaráðherra. Það er sami flokkurinn og tók sig til þegar hann tók við völdum 2013 og skar niður fjármagn til sérstaks saksóknara um fleiri hundruð milljónir, um leið og hann tók við völdum. Þar með fór greiningargetu okkar, getu okkar til að takast á við efnahagsmál verulega hrakandi. Þannig að maður veltir fyrir sér — hafandi séð þessi tilmæli, sem við fengum fyrir 12 árum síðan, tilmæli sem við vorum að fá endurtekið, aftur og aftur, frá FATF án þess að nokkuð væri gert til að bregðast við fyrr en við vorum komin rakleiðis á gráan lista, sem gerist ekki oft, get ég sagt ykkur, hvað þá gagnvart landi eins og Íslandi — hvort það sé markviss stefna að tryggja að ekki sé hægt að hafa eftirlit með peningaþvætti, með erlendum mútubrotum, með þessum stóru efnahagslegu glæpum sem við vitum að undirheimarnir, sem dómsmálaráðherrar eru svo gjarnir á að tala um þegar þeir tala um forvirkar rannsóknarheimildir og rafbyssuvæðingu lögreglunnar og hvaðeina, hafa takmarkaða aðkomu að. Þessi efnahagsbrot eru sjaldan framin af fólkinu sem lögreglan þarf að nota rafbyssur gegn samkvæmt sumum heimildum. Þessi efnahagsbrot eru framin af þeim sem hafa ítök og völd í íslensku samfélagi og aðgang að aflandsreikningum, lögfræðingum og skattaráðgjöfum til að aðstoða þá við þessa verknaði.

Allar götur síðan 2013 a.m.k. hefur ekki verið bætt fyrir þann skaða sem helsta embættið sem á að rannsaka efnahagsbrotamál á Íslandi varð fyrir, eða þá eftirmenn þess eða eftirstofnanir þess í kjölfarið. Allar þær aðgerðir sem ríkisstjórnin sagðist ætla að grípa til í kjölfar Samherjamálsins, hvar eru þær? Hvar eru efndirnar í því? Það sem gerðist var að þeim stofnunum sem fara með rannsóknarábyrgðina í Samherjamálinu voru gefnar einhverjar 200 milljónir, held ég, til að deila á milli sín, eitthvað svoleiðis, í einskiptiskostnað, ef ég man rétt, sem auðvitað ofan í gapandi gat fjárskorts er ekki neitt, virðulegi forseti, og gerir það að verkum að það er ekki hægt að bregðast við með viðeigandi hætti. Þannig að þó að hér sé vissulega verið að stíga skref, verið að breyta lögum til samræmis við tilmæli, er ekki verið að gera það sem mestu máli skiptir, sem er að tryggja að við höfum mannskap, greiningargetu og þekkingu í kerfinu til að í fyrsta lagi verða vör við svona brot, vera meðvituð um hvert eigi að leita og bara geta komið þeim áfram á tilsettum tíma.

Ég kalla því eftir að gerð verði gangskör í þessum málum og ef ríkisstjórnin vill virkilega að láta trúa því um sig að henni sé annt um að bregðast við málum sem þessum, vilji ekki líta undan, þá þarf augljóslega að gera miklu betur og það þarf augljóslega að uppfylla öll 17 tilmælin, ekki bara tvenn 12 árum síðar.