almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að leggja fram þetta mál. Ég styð það auðvitað í öllum meginatriðum og hugsunina þarna á bak við en mig langar samt að hefja mál mitt á því að benda á það er eitthvað ævintýralega skakkt við þá mynd að á sama tíma og hæstv. dómsmálaráðherra leggur til þessa breytingu á lögum, sem á að treysta úrræði til að bregðast við mútubrotum, skuli aðstoðarmaður þessa sama dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali grafa undan þeirri starfsemi fjölmiðla sem hefur upplýst um stórt mútumál sem er til rannsóknar og skekið hefur samfélagið um langt skeið með því að rukka fjölmiðla um heimildarmenn sína í einum anga málsins.
Þetta finnst mér eiginlega að vera eitthvað sem við þurfum að ræða samhliða því máli sem hér er til umfjöllunar því að það er alveg hárrétt sem kom fram áðan hjá hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, og reyndar fleirum sem tekið hafa til máls, að það er ekki nóg að setjast niður og styrkja lög með lagagreinum. Það verður að styrkja öll úrræði sem eru til staðar til að framfylgja þessum sömu lagaúrræðum. Það er ekki hægt að demba auknum skyldum á þá sem sjá um þessi mál án þess að huga að því samhliða að úrræðin til þess að takast á við málin, rannsaka þau, koma þeim í saksókn og til dómstóla og þar fram eftir götunum, sitji ekki á hakanum á meðan. Þetta þarf auðvitað hanga saman.
Ég tek undir það sem hér hefur komið fram þegar menn eru að tala um lögreglu, ákæruvald, dómstóla, samkeppniseftirlit, fjármálaeftirlit, jafnvel umboðsmann Alþingis og fleiri sem eru varðmenn almennings gagnvart valdinu, getum við sagt, þótt í einhverjum tilfellum sé þetta hluti valdsins líka. Þetta er algjört lykilatriði þegar við ræðum þessi mál. Þess vegna geri ég það að umtalsefni að á sama tíma og við erum að ræða þetta hér þá skuli aðstoðarmaður hæstv. ráðherra fara fram með þeim hætti sem hann gerði í útvarpsþætti í gær. Mér finnst þetta algjörlega síðasta sort, einfaldlega vegna þess að á meðan við erum að tala um að styrkja svona úrræði og styrkja viðleitni og kraft til að takast á við brot þá er það algerlega fyrir neðan allar hellur að grafið sé undan viðleitni þeirra sem oftast eða a.m.k. mjög oft upplýsa um svona brot. Það er alveg rétt sem kom fram áðan hjá hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, að eðli svona mála er þannig að við heyrum oft fyrst af þeim í fjölmiðlum og þess vegna myndi ég vilja nefna þetta tvennt saman, þ.e. annars vegar hvernig menn tala um fjölmiðla, hvernig menn grafa undan viðleitni þeirra til að upplýsa um það sem oft liggur í þagnargildi og þrífst einhvern veginn í skugganum, því að eftir höfðinu dansa limirnir. Það er bara svoleiðis.
Af því að við erum að tala um mútur þá er stærsta einstaka málið sem við þekkjum úr samfélagsumræðunni undanfarin ár auðvitað þessi meintu brot stjórnenda Samherja um að hafa mútað háttsettum aðilum. Og við skulum algerlega að halda því til haga að það er enn þá verið að rannsaka það mál og öll kurl ekki komin til grafar í því. En a.m.k. var þungi þess sem fram kom í umfjöllun fjölmiðla um þetta slíkur að fólk bíður eftir því að sjá hver niðurstaðan verður og ég held að allir geti slegið því föstu að þetta leit a.m.k. ekki vel út þegar fjölmiðlarnir voru að fjalla um þetta. Þannig að atburðarásin í því er einhvern veginn sú að það gerast einhverjir atburðir úti í heimi sem enginn veit um. Það eru fjölmiðlar sem upplýsa um það. Viðbrögð þeirra sem verið er að rannsaka og skoða af hálfu fjölmiðla og síðan auðvitað af hálfu yfirvalda í framhaldinu eru þau að ráðast mjög heiftarlega gegn fjölmiðlunum með alveg einstaklega svívirðilegum hætti, svo svívirðilegum að fjölmargir ráðherrar, aðspurðir reyndar oft frekar en að þeir hafi gert það af fyrra bragði, tóku undir þá allsherjarfordæmingu sem í samfélaginu var á vinnubrögðum þess fyrirtækis sem hér átti í hlut og við þekkjum öll mætavel og ég er að tala um í þessu samhengi.
Síðan þegar við erum á þeim stað, á sama tíma og við erum að ræða þetta mál núna, að fjölmiðlamenn eru með réttarstöðu sakbornings í máli — og við skulum alveg gefa því það svigrúm að menn geta haft alls konar skoðanir á því hvort það sé rétt eða ekki. Það eru bara uppi mismunandi sjónarmið um það. En a.m.k. að við notum ekki tækifærið til þess, hvort sem það eru þá ráðherrar, aðstoðarmenn ráðherra eða aðrir handhafar valds, að dreifa því út um allar koppagrundir að fjölmiðlafólk sem sinnir störfum sínum sé bara rétt eins og hver annar þegar kemur að þessum málum þegar allir þekkja og vita og þurfa að viðurkenna af sanngirni þegar rætt er um þessi mál að réttarstaða og vernd fjölmiðla er auðvitað allt önnur heldur en gefið er til kynna þegar er verið að ræða um þessi mál. Þetta myndi ég mjög gjarnan vilja hafa í huga hér þegar við erum að tala um það mál sem liggur fyrir vegna þess, eins og ég sagði áðan, að það er ekki nóg að breyta lögum, hugsun þeirra sem framfylgja lögunum, valdhafar verða að tala með þeim hætti, bæði um eftirlitsstofnanir, um lögreglu, dómara, saksókn og fjölmiðla, að það sé raunverulegt bit í því þegar verið er að setja lög hér á hinu háa Alþingi. Við erum í þeirri stöðu þegar við erum að tala um mútubrot að við förum beint í það sem við sjáum í sjónvarpsþáttum og bíómyndum þar sem brún peningaumslög skipta um hendur eða feitar millifærslur fara á milli reikninga eða eitthvað þess háttar. En það er forvitnilegt að skoða þetta í sögulegu samhengi vegna þess að lengi vel var til þekkt hugtak á Íslandi sem kallaðist fyrirgreiðslupólitík. Það var svolítið vítt hugtak í umræðu en partur af því sem við kölluðum fyrirgreiðslupólitík var ekkert annað en það sem vel mætti heimfæra undir almennan skilning fólks, óháð lagaskilgreiningu, á því hvað eru mútur, þ.e. þegar menn notfæra sér vald sitt til að koma einhverjum málum í gegn, til að mynda gegn einhverjum miklum stuðningi. Það þarf ekkert endilega að vera fjárhagslegur stuðningur, það getur verið annars konar stuðningur. Fólk í valdastöðum þarf að gæta að sér. Sem betur fer erum við farin að tala öðruvísi um þessi mál núna en við gerðum fyrir einhverjum áratugum síðan en mér finnst mikilvægt að hafa þetta samhengi í huga því að þegar við erum að tala um þessa hluti almennt séð þá erum við ekki alltaf að tala um þessi stærstu mál. Það er fjölmargt þarna undir smærra sem þarf að ná að komast inn í lög og vera hægt að taka á.
Síðan myndi ég mjög gjarnan vilja fá að árétta þakkir til hæstv. ráðherra um að mæla fyrir þessu máli. Ég vona að orð okkar sem hér erum að tala um það að eftirfylgnin þurfi að eiga sér stað, bæði þegar kemur að rannsókn mála, þegar kemur að lögreglunni, þegar kemur að dómstólum, þegar kemur að ákæruvaldi, það má henda inn í jöfnuna líka í stærra samhenginu samkeppniseftirliti, fjármálaeftirliti, eins og ég nefndi áðan, að þetta tvennt verði ekki aðskilið, þ.e., lagabreytingar og vilji Alþingis og síðan raunveruleg tæki og tól þeirra sem fara með málin. Þá árétta ég enn og aftur: Fjölmiðlar gegna þar veigamiklu hlutverki og það er ekki heppilegt að á sama tíma og við erum að ræða þetta hér í þinginu skuli þeir sem fara með framkvæmdarvaldið, hvort sem það eru ráðherrar eða aðstoðarmenn ráðherra eða aðrir, tala með þeim hætti sem þeir hafa gert um fjölmiðla og grafið undan krafti þeirra og vilja til að ljóstra upp um mál sem nákvæmlega eru undir í þessari umræðu hér.