152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:40]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er mikilvægt mál, þó að það sé ekki stórt að umfangi eru hér, eins og sagt hefur verið, nauðsynlegar breytingar á almennum hegningarlögum til að unnt sé að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar, OECD, um mútur í alþjóðlegum viðskiptum. En mig langaði til að fjalla pínulítið um þetta í því samhengi sem ég hef unnið í á öðrum vettvangi, þ.e. gagnvart gæðaeftirliti. Gæðaeftirlit er gríðarlega mikilvægur partur af heildarsamhengi svona reglna sem við höfum um ýmislegt, eins og t.d. mútur. Að sinna gæðaeftirlitinu er oft eitthvað sem sett er í annan forgang. Það er nauðsynlegt að setja lögin og reglurnar og það er nauðsynlegt að hafa alla vega starfsemi sem nær að sinna augljósustu verkefnunum og helstu áskorunum; kærum og ýmsu svoleiðis. En undir niðri liggur alltaf tilraun til að fara ekki eftir reglum út af einhvers konar von um gróða eða eitthvað því um líkt ef ekki er farið eftir settum reglum. Þetta ættum við að þekkja í gegnum tíðina, að í öllum löndum eru settar ákveðnar reglur, í rauninni leikreglur, um það hvernig við viljum haga samkeppnisfyrirkomulaginu. Ef sumir brjóta þær reglur og komast upp með það þá fá þeir einhvers konar forskot á aðra. Mútur eru ein leið til að komast í ákveðna greiðastarfsemi jafnvel gagnvart aðilum sem eiga að sinna þessu eftirliti og koma í veg fyrir að einhver fái óeðlilegt forskot umfram annan.

Þess vegna er það rosalega mikilvægt að sá vettvangur sé óvefengjanlegur og að rosalega mikil áhersla sé lögð á gott gagnsæi á slík störf. Mér finnst vera keimur af því t.d. í þessari greinargerð sem fylgir þessu frumvarpi, í orðunum, eins og það hafi ekki verið klárað — eða eins segir þar, með leyfi forseta:

„Í skýrslunni lýsir vinnuhópurinn áhyggjum af því að íslensk stjórnvöld hafi enn ekki lokið við rannsókn á einu einasta sakamáli er varðar mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna.“

Þetta er setning sem slær mann á þann hátt að maður spyr sig svona í gæðaeftirlitsham: Nú, er það kannski af því að það eru engin slík mál? Ef ekki, af hverju er það þá ekki sagt? Eru einhver slík mál þá til staðar. Og ef svo er, hverjar eru ástæðurnar fyrir því? Er ekki eðlilegt ef þetta á að vera tæknileg leiðrétting á þessum reglum og lögum, að útskýra það kannski á einhvern þann hátt að við sem erum í löggjafarvinnunni skiljum samhengið við þessa tæknilegu galla, þá sem verið er að laga? Það er alla vega ekki útskýrt mjög skilmerkilega í greinargerðinni, skýrslan gerir það að vissu leyti á einhvern hátt, en kannski einmitt síður í þessu íslenska umhverfi, alla vega í þeim yfirlestri sem ég náði. Í allri vinnunni hérna nær maður oft ekki dýptinni, maður nær yfirborðinu og það þarf tíma til að fara dýpra og ná tengingunum til að fatta að verið er að tala um ákveðin mál sem er ekkert augljóst að verið sé að vísa í og ná þá heildarsamhenginu.

En þar er einmitt þar sem gæðaeftirlitið sinnir aðalvinnunni, að sjá til þess að allir gírar kerfisins séu samstilltir. Og þegar einhver slær ekki í takt einhvers staðar þá á það að vekja athygli þeirra sem sinna því gæðaeftirliti að lögin gegni tilgangi sínum. Því að það er eitt af því sem þarf að gera með allar reglur, eins og t.d. þegar ég var að vinna í gæðaeftirliti í tölvuleikjabransanum, að þar eru bara forrit sem verið er að vinna með, allir þeir sem spila tölvuleikinn spila eftir þessu forriti. Það er hægt að beita ýmsum tækjum og tólum til þess að reyna að svindla á því forriti á einn eða annan hátt. Eitt af því sem alltaf er reynt að vakta er: Hvernig er mögulegt á að svindla á kerfinu? Að vita hvar veikleikarnir liggja, því að það er oft ekki alveg hægt að setja lög og reglur um alveg nákvæmlega allt, ekki hárnákvæmlega allt. En að vita a.m.k. hvar veikleikarnir eru til þess að geta fylgst með þeim er lykilatriði til að koma í veg fyrir að einhver sé að reyna að nýta sér veikleikana. Það er kannski helsta athugasemdin sem ég hef inn í vinnu nefndarinnar, að ná að mála upp mynd af mútustarfsemi á Íslandi, þar sem sagt er að hafi ekki verið einu einasta máli lokið.

Hvernig ferli liggur þar á bak við? Hvernig pössum við statt og stöðugt upp á að tilgangur laganna og reglnanna viðhaldi sér? Af því að fólk má vera algjörlega 100% viss um það að það er alltaf einhver að reyna að túlka sig fram hjá lögunum, fara tæknilega séð eftir lögunum en nýta þau á þann hátt sem er kannski ekki alveg eins og átti að fara með þau, eða beinlínis bara brjóta þau, að sjálfsögðu. Það gerist bara. Mannlegt eðli er dálítið mikið þannig að það eru alltaf einhverjir sem reyna að græða meira ef þeir telja sig geta komist upp með það, jafnvel þótt þeir telji sig ekki einu sinni geta komist upp með það en bara alla vega á meðan þeir geta komist upp með það, og þá er þeim nokk sama. Það er óhjákvæmilegt. Ef við værum ekki með svoleiðis fólk þá þyrftum við mjög lítið á lögum og reglum að halda. Það er merkilegt að í rauninni er allt þetta starf sem við vinnum einmitt til þess að vinna gegn þeim sem eru stöðugt að reyna að svindla á öðrum. Ansi mikið umstang til að reyna að koma í veg fyrir það. Margir segja á móti að við ættum þá bara að sleppa öllum reglum. En við vitum líka að við byrjuðum þar en það gekk ekkert upp. Þá var það bara sá sem var stærstur og sterkastur o.s.frv. sem réði öllu og þá var ákveðið ógnarvald, það var konungsveldi o.s.frv. Við höfum verið þar. Það virkaði ekki. Það þýðir þó ekki að núverandi kerfi sé best. Við erum alltaf að reyna að leita að leið til að gera hlutina betri, en við vitum það alveg að við förum ekki í samfélag þar sem við sleppum öllum reglum og höfum sjálfstjórnandi markaði eða eitthvað því um líkt. Það bara gengur ekki. Það virkar ekki. Þannig að miðað við það þá þurfum við að vakta að kerfið sem við reynum að setja okkur í sameiningu virki á þann hátt sem við teljum að sé sanngjarnt fyrir alla, að allir séu að spila sama leik.

Ég vil leggja það inn í störf nefndarinnar og spyrja þessara spurninga:

Hvernig liggur landið í þessu? Af hverju er ekki búið að klára eitt einasta mál er varðar mútubrot? Hvernig eru birtingarmyndir mútubrota almennt séð á Íslandi? Ég kallaði eftir spillingarsögum hérna fyrir nokkrum árum síðan, bara nafnlaust, af því að að hluta til var ég með tilgátu um að fólk skildi jafnvel ekki hvað spilling væri, það væri með einhverja skekkta mynd, jafnvel einhverja kvikmyndamynd af því hvað spilling væri í raun og veru. Því að ýmislegt eins og frændhygli er spilling í opinberu samhengi, en ef Jón úti bæ á einkafyrirtæki og ræður bróður sinn eða frænda sinn eða eitthvað svoleiðis þá er öllum sama, hann má gera það sem hann vill með sitt einkafyrirtæki. En um leið og það er komið út í opinbert, sameiginlegt apparat þá er það orðin spilling, að gera það sem telst jafnvel eðlilegt innan einkaframtaksins. Þannig að ég spurði einfaldlega, bara opið: Er fólk með einhverjar sögur um spillingu? Bara til þess að fá hugmyndir fólks um það hvað það teldi vera spillingu og jafnvel einhver dæmi úr raunveruleikanum til þess að birta og sýna fólki dæmi um hvað spilling væri til þess að það myndi kannski læra það ef það sæi að það að — ja, við höfum nokkur dæmi um það í Verbúðinni, eins og með kaupin á áfengiskössunum o.s.frv. Það var svipað dæmi í einu af svörunum sem ég fékk. En eitt svarið sem ég fékk var: Ég greiddi eftirlitsmanni 50.000 kr. á ári til þess að láta fyrirtækið mitt vera. Bara eins borðleggjandi og hægt væri að hafa það, bara dæmi um það nákvæmlega hvernig beinharðir peningar eru settir í vasa opinbers starfsmanns til að sleppa eftirliti, sem býr þá til alveg þó nokkuð mikinn aðstöðumun þess aðila gagnvart öllum öðrum. Við þekkjum kennitöluflakkið fram og til baka. Það er ekki enn þá búið að laga það. Það vantar þetta gagnsæi í fyrirtækjarekstur til að fólk viti við hverja það er í rauninni að eiga viðskipti, því að þú vilt ekki þurfa að brenna þig á því aftur og aftur að eiga í viðskiptum við sama aðila sem er síðan sífellt að stinga af frá ógreiddum skuldum, bara af því að hann skipti um kennitölu og er með eitthvert annað nafn núna á bak við fyrirtækið en er í raun og veru sami aðili og þú brenndir þig á síðast. Lögin um raunverulega eigendur koma til móts við þetta, tvímælalaust. En gagnsæið vantar, aðgengið að þessu vantar, t.d. aukið aðgengi að hluthafaskrá og það þarf að uppfæra hana oftar og hraðar.

Það er búið að laga þetta að vissu leyti með gjaldfrjálsan aðgang að fyrirtækjaskrá, það var stórt skref sem var tekið hérna þegar frumvarp Pírata var samþykkt. Svo voru Píratar með frumvarp um gjaldfrjálsan aðgang að hluthafaskrá og ársreikningaskrá. Ráðherra kom með breytingar á ársreikningaskrá þannig að það yrði gert gjaldfrjálst að nálgast hana. Þar eru náttúrlega líka vissar upplýsingar um hluthafa. En það vantar einmitt grunninn þarna, að hluthafaskráin sé opin og aðgengileg og sé uppfærð reglulega, þannig að þegar það eru gerðar breytingar þá uppfærist sjálfkrafa aðgengilegur gagnagrunnur um það hver á hvað og hvar. Ekkert óeðlilegt við að þetta sé aðgengilegt öllum.

Þannig að það er rosalega margt í þessu umhverfi sem við þurfum að laga, sérstaklega hvað varðar gagnsæi og í rauninni bara ákveðna kennslu í því hvað spilling er. Við lærum ekkert rosalega mikið á það í æsku hvað ofbeldi er, sem gerir það að verkum að við beitum því jafnvel sjálf eða áttum okkur ekki á því þegar við verðum fyrir því að verið sé að beita ofbeldi. Á nákvæmlega sama hátt er það stundum rosalega mannlegt að redda bara vini sínum einhverri vinnu eða eitthvað svoleiðis. En þegar það er gert í ákveðnum tilvikum þá er það spilling en ekki í öðrum tilvikum. Að við þekkjum muninn þarna á milli er eitthvað sem er algerlega nauðsynlegt og við þurfum að gera betur í því efni.