152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:55]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Herra forseti. Mútur, þær gerast ekki á Íslandi. Eða hvað? Peningaþvætti, það gerist ekki á Íslandi. Eða hvað? Íslendingar myndu aldrei múta eða þvætta peninga eða eiga leynilega aflandsreikninga. Eða hvað?

Virðulegi forseti. Ef aðgerðir Sjálfstæðisflokksins í þessum málum eru skoðaðar þá er okkur talin trú um að þetta gerist ekki á Íslandi. Það að múta einhverjum getur verið mismunandi eftir skilgreiningu. Ég starfaði hjá alþjóðlegu fyrirtæki einu sinni þar sem það að gefa opinberum starfsmanni einhvers ríkis eitthvað meira en penna að gjöf var skilgreint sem mútur. Það að bjóða viðkomandi út að borða var skilgreint sem mútur. Það að gefa viðkomandi eitthvað aðeins stærra en pennann, kannski eitthvert smá markaðsdót sem við vorum með, var skilgreint sem mútur. Þessu þurftum við að fara eftir.

Það er nefnilega þannig að það er dæmt fyrir mútur á Íslandi. Það hefur ekki verið dæmt fyrir mútur gagnvart erlendum opinberum aðilum en það hefur verið dæmt fyrir mútur og það að þiggja mútur á Íslandi. En þrátt fyrir að þessi brot gerist hér á landi reynir Sjálfstæðisflokkurinn að gera þeim sem eiga að rannsaka eða sækja til saka fyrir þessi mál lífið erfitt. Lög eins og það frumvarp sem verið er að bera fram hér í dag eru ekki sett fram fyrr en seint og um síðir og þá einungis vegna þess að Ísland var komið á válista og það var byrjað að sparka í rassinn á ríkisstjórninni að fara að gera eitthvað í þessu ellegar myndum við ekki geta tekið þátt í alþjóðlegu umhverfi.

Fjármagnið er skorið niður til eftirlitsaðila og rannsakenda. Það er fallegt að tala um að það þurfi að þjálfa fólk en setja svo enga peninga í það. Fjölmiðlar, sem eru oftast þeir sem fjalla opinberlega um þessi mál því að ekki þorir almenningur að tala um þau, eru ofsóttir, jafnvel af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Og við þurfum því að spyrja okkur: Af hverju? Af hverju er okkur talin trú um að ekkert sé að gerast? Af hverju er ekkert gert til að bæta þetta? Af hverju er ekki sett fjármagn í þetta? Af hverju eru fjölmiðlar ofsóttir? Við hljótum að spyrja okkur: Er einhvers staðar óhreint mjöl í pokahorninu?