152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[17:59]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil sérstaklega þakka fyrir þær ræður sem hafa verið hér málefnalegar í umfjöllun um þetta mikilvæga mál og sérstaklega bar þar af ræða hv. þm. Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur og það voru ágætar ábendingar frá Eyjólfi Ármannssyni og Sigmari Guðmundssyni. Það sem kom m.a. þar fram var að líta á þessar stofnanir sem hér eiga undir sem innviði og ég get verið sammála því að þetta eru innviðir sem þurfa að vera traustir og þarf að styrkja. Þær fullyrðingar sem hér hefur síðan verið haldið á lofti um vilja ráðherrans og ákveðinna aðila þingflokks til að grafa undan getu eftirlitsstofnana, stunda vinahygli, greiðastarfsemi og fyrirgreiðslupólitík jarða sig sjálfar og er ekki svaraverðar. Mútur, efnahagsbrot og jafnvel hryðjuverk, eins og hér var orðað af einum málshefjanda, eru auðvitað hluti af skipulagðri brotastarfsemi og það er skipulögð brotastarfsemi sem á stærsta þáttinn í öllum slíkum afbrotum. Skipulögð brotastarfsemi hefur skotið rótum á Íslandi og ekki nóg með það, henni er að vaxa fiskur um hrygg. Glímunni við þennan vágest verður ekki mætt öðruvísi en að styrkja þær stofnanir sem eiga við þetta að etja. Þeir sem hafa kynnt sér skýrslur lögreglunnar um skipulagða brotastarfsemi sjá hvað kemur þar fyrst fram í þessum stofnunum sem allir eru sammála um að þurfi að styrkja og bera traust til, þrátt fyrir meinta niðurrifsstarfsemi Sjálfstæðisflokksins sem sumir reyna að halda hér fram með órökstuddum dylgjum. Það verður gert með því að þjálfa fólk. Það verður gert með því að mennta fólk og fjölga fólki. Við þurfum þó að vera viss um það hvað við erum að fá fyrir það sem við leggjum í þetta og hvort við getum gert kerfið skilvirkara.

Það sem stendur upp úr, og það sem fólk sem talaði hæst um að það þurfi að styrkja stofnanirnar og efla þær talar síðan niður, eru víðtækari heimildir til að geta gripið inn í rannsóknir á fyrri stigum, fyrirbyggjandi rannsóknir, fyrirbyggjandi eftirlit. Það er grundvallaratriði til að geta tekist á við þessa málaflokka. Ég fór yfir það í ræðu minni áðan hvernig íslensk lögregluembætti eru í raun vopnlaus þegar upplýsingar berast frá lögregluembættum nágrannalanda okkar varðandi starfsemi eða einstaklinga sem ástæða er til að fylgjast með. Lögin heimila það ekki. Þetta er lykilatriði og við þessu er ég að bregðast, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Alþingi, dómsmálaráðherra í umboði Alþingis og þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Við þessu erum við að bregðast með því að leggja fram frumvörp til að styrkja þessar valdheimildir, til að styrkja þessa starfsemi. Í fjárlögum fyrir þetta ár, við afgreiðslu þeirra á síðasta ári, var hátt í milljarði bætt við í fjáraukalögum og fjárlagagerð til að styrkja þessar stofnanir, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hátt í 1.000 milljónum. Svo geta menn raupað hér í einhverjar aðrar áttir, algerlega órökstuddar dylgjur. Við erum á þessari vegferð og stefna okkar er skýr. Við ætlum að bregðast við þessum vágesti sem er í íslensku samfélagi og lýtur að skipulagðri brotastarfsemi, lýtur að mútustarfsemi og öðru slíku, viðbrögðum lögreglu til þess að geta varið sjálfa sig og varið borgarana, viðbrögðum lögreglu til að geta rannsakað mál, saksóknara til að saksækja mál og dómstólunum til að dæma. Við erum á þeirri vegferð og ég fór ágætlega yfir það í ræðu minni fyrr í dag.

Það hefur verið spurt hér: Af hverju kemur þetta mál núna? Þetta málið er búið að vera í ákveðnum undirbúningi. Við vitum hvernig þingið var á síðasta ári. Það hefði örugglega komið fram á síðasta ári ef tækifæri hefði verið til þess. Þannig að það má að einhverju leyti rekja til þeirra aðstæðna sem voru á árinu 2020 í starfsemi Alþingis. Hversu mörg mál eru til umfjöllunar eða rannsóknar, ég hef ekki töluna yfir það, hv. þm. Lenya Rún Taha Karim, því miður ekki, en það er hægt að afla þeirra upplýsinga.

Úr þeim málefnalegu ræðum sem hér hafa verið fluttar tek ég með mér hvatninguna um að gera betur, tek með mér hvatninguna um að skoða þessi mál enn frekar. Eins og ég hef sagt ykkur eru fleiri mál sem tengjast þessu á leiðinni til hv. Alþingis og ég vænti góðs samstarfs í því og einnig því að þegar við erum búin að sjá hvernig skoðun okkar á því hvernig við getum lagað starfsferla, náð aukinni skilvirkni fram í nýtingu á því fjármagni sem við höfum til umráða — sem er umtalsvert og hefur vaxið mikið á undanförnum árum, hvað sem aðrir segja þá hafa vaxið mikið framlög til löggæslumála, rannsóknarmála, saksóknara, til allra þessara þátta hafa framlögin aukist á síðustu árum og við erum að halda áfram á þeirri vegferð. Í ljósi umræðunnar vænti ég skilnings á því að við munum þurfa að gera betur í þeim efnum. En þegar ég legg þá tillögu fyrir þingið, sem birtist reyndar í fjármálaáætlun væntanlega í vor og svo við fjárlagagerð á næsta ári, þá vil ég hafa það vel rökstutt og kortlagt í hvað þeir peningar fara og hvað skattborgarar landsins fá fyrir þau auknu framlög sem nauðsynleg eru inn í þessa málaflokka.