Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Í síðustu viku bárust frábærar fréttir fyrir ferðaþjónustu í landinu um tilkomu flugfélagsins Niceair og áform þess um reglubundið flug milli Akureyrar og Evrópu. Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú hafa lengi unnið saman að markaðssetningu þess helmings landsins sem þær starfa fyrir. Þessar fréttir skapa alveg nýjan grundvöll fyrir frekari samvinnu og eflingu ferðaþjónustunnar á Norður- og Austurlandi.

Meðan millilandaflugið er undirstaða nýrra tækifæra er innanlandsflugið grunnþjónusta og liður í almenningssamgöngum. Loftbrúin, sem hleypt var af stokkunum í september 2020, er einmitt viðurkenning og staðfesting á því. Tilgangur hennar er að bæta aðgengi íbúa að miðlægri þjónustu og efla byggðir. Loftbrúin veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi í áætlunarflugi innan lands fyrir fólk sem býr fjarri höfuðborgarsvæðinu. Hún er fyrir fólk sem býr á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra og að hluta vestra, Austurlandi, Hornafirði og Vestmannaeyjum, en rúmlega 60.000 íbúar geta nýtt sér loftbrúna og hver einstaklingur getur fengið allt að sex flugleggi á ári. Loftbrúnni hefur verið mjög vel tekið og tæplega 70.000 flugleggir hafa verið bókaðir á fyrstu 18 mánuðunum. Verkefnið þarf hins vegar að halda áfram að þróa með samfélaginu og tækninni. Það er fagnaðarefni að nú frá 7. febrúar var Loftbrúin víkkuð út og nú er tryggt að börn sem eiga foreldra sem búsettir eru á svæði sem hún nær til en eiga sjálf lögheimili utan þess, geta nýtt hana í flugferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu til foreldra. Loftbrúna þarf að þróa áfram eins og áður sagði í samvinnu við flugfélögin. Vefir flugfélaganna verða að vinna með. Það er hægt að nota tæknina við að leysa (Forseti hringir.) þær áskoranir sem þar eru. Tölvurnar segja aldrei nei ef fólkið sem forritar gerir það ekki.