152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[14:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er nú kannski ekki beint tengt fundarstjórn forseta, en hér voru fluttar ræður áðan í störfum þingsins þar sem talað var um hið hræðilega ástand sem er í Úkraínu í dag. Ég er glöð að heyra þá samstöðu sem virðist ríkja hjá þingmönnum hér í íslenska þinginu, samstöðu með þeim ákvörðunum og yfirlýsingum sem hæstv. utanríkisráðherra hefur gefið, samstöðu með vinum okkar í vestrænum löndum og þeirri ákvörðun að við munum auðvitað standa þétt á bak við okkar vini og nágranna. Það var einnig rætt hér að skortur væri á fundum í utanríkismálanefnd. Mér skilst að haldinn verði fundur bæði í fyrramálið og jafnframt seinni partinn um leið og hæstv. utanríkisráðherra kemur til landsins og ég held að það sé mjög gott. Á morgun er ég á leið til Vínarborgar þar sem ég mun taka þátt í vetrarfundi ÖSE-þingsins og það er alveg ljóst að málflutningur minn verður í sama anda og íslenskra stjórnvalda og vina okkar í vestrænni samstöðu. Ég hvet aðra þingmenn til að nýta tækifærið í alþjóðasamstarfi okkar til að tala ávallt fyrir mannréttindum og því að alþjóðalög séu ávallt virt því að það eru örugglega fá ríki í heiminum sem eiga jafn mikið undir því og einmitt litla Ísland, herlausa þjóðin í norðri.