stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Ég er með gögn frá Hafrannsóknastofnun frá 2021 varðandi sandkolann, með leyfi forseta.
„Hafrannsóknastofnun getur ekki metið stöðu stofnsins og veiðiálag …“ — Áfram: „Ekki er hægt að framkvæma tölfræðilegt stofnmat …“ og svo áfram: „Óvissa er um þróun stofnstærðar á komandi árum þar sem takmarkaðar upplýsingar eru til um stærð árganga sem eru að bætast í veiðistofninn.“
Svo er verið að vísa í vísindalega ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þegar svona skýrsla liggur fyrir. Þeir vita ekkert um stofninn, það er alveg augljóst mál. Það kemur fram líka í greinargerðinni. Það er ekkert fjallað á nokkurn hátt um vísindalega ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Þetta virðist vera einhver hagræðing. Það er léleg afkoma á veiðunum og annað slíkt, fyrirtækjunum gengur illa. En það réttlætir ekki takmörkun á atvinnufrelsi landsmanna varðandi þessar veiðar. Ég ítreka að þetta er meðafli og það á að gefa þetta frjálst áfram. Ég tel að rökin (Forseti hringir.) hafi ekki komið fram en ég óska eftir að hæstv. ráðherra bendi mér á þau.