152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[14:26]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nú svo að í samræmi við löggjöfina sem Alþingi hefur sett hér og í raun og veru myndað þann ramma um nýtingu sjávarauðlindarinnar sem við erum öll bundin af þá er gert ráð fyrir því að Hafrannsóknastofnun sé sú stofnun sem veitir okkur vísindalega ráðgjöf. Ég tel afar mikilvægt að virða þá ráðgjöf. Ég tel afar mikilvægt, ekki síður sem stjórnmálamaður sem leggur mikla áherslu á græn sjónarmið í einu og öllu, að varúðarnálgun sé viðhöfð í þessu efni sem öðrum þegar við erum að glíma við og eiga við nýtingu vistkerfa.

Virðulegur forseti. Þótt þingmaður sá sem hér spyr telji sig vita betur þá dugar það mér ekki sem ráðgjöf um aflahlutdeild.