stjórn fiskveiða.
Forseti. Í greinargerð með frumvarpinu stendur, með leyfi forseta:
„Lög um stjórn fiskveiða eru öðrum þræði reist á mati á því að sú hagkvæmni, sem leiði af varanleika aflahlutdeildar og heimildum til framsals hennar og aflamarks, stuðli að arðbærri nýtingu fiskstofna fyrir þjóðarbúið í samræmi við markmið 1. gr. laganna.“
Sem hljómar svo, með leyfi forseta:
„Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“
Þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra um nákvæmlega það: óafturkallanlegt forræði og eignarhald. Mér skildist á hæstv. ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum fyrir nokkru að það væri mögulega glæta á því að það væri eitthvað sem ætti að gera í þessu gjafakvótakerfi sem við erum í. En svo kemur þetta frumvarp sem dettur inn í nákvæmlega sama far og við erum einmitt búin að kynnast dálítið náið á ný í dramatíseraðri sjónvarpsþáttaseríu. Þá velti ég því fyrir mér hvort fólk meini í alvörunni eitthvað með því að það þurfi að gera eitthvað í þessu kerfi til að koma í veg fyrir það hvernig auðurinn safnast á mjög fáar hendur en ekki til sameignar okkar allra. Af því að 2020 var staðan sú að ríkissjóður þurfti að borga með eftirliti með sjávarauðlindinni 500 millj. kr., hálfan milljarð, af því að veiðigjöldin (Forseti hringir.) dugðu ekki fyrir rekstrinum á Landhelgisgæslunni, Hafrannsóknastofnun og fleiri stofnunum.