152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[14:30]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram í mínu fyrra andsvari þá finnst mér mikilvægt að halda því til haga að það er grundvallarmunur á því sem hér er verið að leggja til og því sem varðar þorsk til að mynda og þann umbúnað sem þar er og ég held að það sé mikilvægt að við höldum því til haga. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að við þurfum á skýrara eftirliti að halda. Við þurfum ekki síst á skýrara eftirliti að halda með því sem lýtur að tengdum aðilum í sjávarútvegi og því að aflaheimildir séu að safnast á mjög fárra hendur. Þetta skiptir máli og þetta skiptir ekki bara máli vegna þess að við höfum sett okkur reglur heldur skiptir þetta líka máli vegna þess að það er gegnumsneitt sú tilfinning og sú sannfæring meðal almennings í landinu að kerfið sé ekki sanngjarnt og við því þarf að bregðast.

Mig langar líka til þess vegna þess sem kom fram í fyrra andsvari um varúðarreglu og af því að þetta er mikilvægur þáttur að þegar við erum að tala um umgengni við náttúruna, það á við hvort sem er á sjó eða landi, að þegar varúðarreglu er beitt þýðir það að við getum aldrei borið því við að við höfum ekki nægilegar upplýsingar og að þar með getum við gengið um auðlindina eins og okkur sýnist. Við getum aldrei borið því við að okkur vanti upplýsingar og að þess vegna getum við yppt öxlum. Ef okkur vantar upplýsingar eigum við að gæta varúðar og það er þess vegna sem ég legg áherslu á að þótt við höfum ekki fullnægjandi upplýsingar að öllu leyti að því er varðar grundvöll ráðgjafar þá eigum við að láta náttúruna njóta vafans.