stjórn fiskveiða.
Forseti. Gott og vel að hæstv. ráðherra vilji svara einhverri annarri spurningu í andsvari en þeirri sem ég var að velta fyrir mér. Kannski fæ svar seinna í umræðunni, ég veit það ekki. Ég er bara að velta fyrir mér: Er þetta ekki einmitt nákvæmlega sama kerfi og allar aðrar kvótasettar tegundir eru að lenda í með framsal og annað slíkt? Er eitthvað öðruvísi við þetta sem við, eins og ráðherra segir, þurfum að gera eitthvað í? Hvernig er hægt að gera eitthvað í því þegar við erum að setja fram einhverjar nýjar tegundir eða aukalega í kvótasetningu, að það fari ekki bara í gamla kerfið? Ég spyr einfaldlega: Hvernig er þetta öðruvísi?