stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við aðkallandi frumvarp um veiðistjórn sandkola og hryggleysingja. Á síðastliðnum árum höfum við séð nauðsyn þess að veiðistjórn þessara sjávartegunda verði skilvirkari, sjálfbærri og fyrirsjáanlegri. Veiðinni hefur hingað til verið stjórnað með ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar á hverju veiðisvæði fyrir sig. Það hafa nær allir aðilar sem málið varðar sammælst um að setning aflahlutdeildar á svæðisbundnum tegundum sé til hagsbóta. Það á við um bæði þær opinberu stofnanir og þá einkaaðila sem vinna í geiranum. Það er því tímabært að farið verði í slíkar aðgerðir t.d. varðandi sæbjúgu. Sumar svæðisbundnar tegundir eru ekki hlutdeildarsettar og skaðleg veiðistjórn er við lýði. Hafrannsóknastofnun lokar hverju svæði fyrir sig með reglugerð þegar stofnunin telur aflann hafa farið yfir það sem ráðlagt er. Ekki er hægt að vita nákvæma dagsetningu þeirrar reglugerðar. Í því felst ákveðin óskilvirkni og ófyrirsjáanleiki fyrir þá sem stunda þessar veiðar að atvinnu. Þetta hefur ítrekað gerst á síðustu fiskveiðiárum og í kjölfarið hefur afli sæbjúgna dregist saman, sem leiðir til mikils kapphlaups um veiðarnar, verri umgengni um afla og minni verðmætasköpunar. Úr þessu öllu verður afkoman verri og áhuginn á veiðunum dvínar.
Varðandi sandkola þá er verið að gera veiðarnar aðgengilegri um allt land með frumvarpi þessu. Nauðsynlegt er að endurreikna aflahlutdeild í sandkola sem tekur mið af landhelginni í heild. Núverandi fyrirkomulag er ekki nógu markvisst yfir landið. Með frumvarpinu náum við skilvirkari stjórn á veiðunum og tryggjum að tækifærin verði til staðar þvert yfir landið. Með þessum breytingum auðveldum við aðgengi að starfsgreininni í þokkabót.
Sú staða hefur komið upp í veiðistjórn að veiðar hafa verið stoppaðar þegar heildarafla er talið náð, þó að veiði hafi ekki verið hafin á sumum svæðum. Þetta hefur t.d. gerst í veiðistjórn grásleppu, og það eru einmitt svona tilfelli sem þetta frumvarp kemur í veg fyrir varðandi sandkola og hryggleysingja. Þessar breytingar eru taldar til bóta í aðkallandi málum og ég fagna því að við ætlum að gera veiðarnar markvissari, sjálfbærari og aðgengilegri. Við komum í veg fyrir ofveiði og brottkast ásamt því að gera líf veiðimanna fyrirsjáanlegra og auðveldara.
Hins vegar er vert að minnast á að frumvarp þetta er í raun endurflutt frá síðasta kjörtímabili. Það hefur tekið töluverðum breytingum líkt og hæstv. ráðherra kom inn á áðan. Helsta breytingin er án efa að öll ákvæði um breytingu á veiðistjórn grásleppu hafa verið felld brott eins og fram kemur í greinargerð. Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra hafði flutt frumvarp sem varðaði veiðistjórn þeirra tegunda sem við ræðum hér í dag sem og veiðistjórn grásleppu.
Virðulegi forseti. Þó svo að efni þess frumvarps sem við ræðum í dag sé gott og nauðsynlegt þá liggur fyrir að þörf er á frekari aðgerðum varðandi veiðistjórn grásleppu. Núverandi fyrirkomulag hefur lengi sætt gagnrýni ýmissa aðila vegna ófyrirsjáanleika og ofveiði, það sé ómarkvisst o.fl. Til dæmis hefur þurft að stöðva grásleppuveiðar fyrr en áætlað var á síðustu árum vegna tilmæla frá Hafrannsóknastofnun. Þeir sem veiða grásleppu hafa knappan tíma eða almennt í kringum mánuð, en á hverju fiskveiðiári er dagafjöldinn tilviljunarkenndur. Hver dagur verður því mjög dýrmætur og fyrirkomulagið tekur ekki tillit til veðurs, veikinda, bilana eða slíkra þátta sem leiða til þess að fiskveiðiskip missa af degi. Annað dæmi væri að veiðar eru sum staðar heimilaðar síðar en á öðrum svæðum vegna reglna um friðanir, þá sérstaklega vegna æðarvarps og dúntekju. Þetta allt leiðir til þess að veiði á grásleppu er óþarflega erfið. Mikið kapphlaup myndast, ofveiði verður og nýliðun er lítil. Það er nær óraunhæft að stíga sín fyrstu skref í þessum iðnaði vegna þessa. Á síðasta ári hafa 150 grásleppuútgerðir lagt árar í bát. Talið er að það sé aðallega sökum fyrrgreindra aðstæðna.
Grásleppuútgerðir og handhafar grásleppuleyfa hafa ítrekað kallað eftir breytingum á fyrirkomulaginu. Meiri hluti þeirra er hlynntur því að grásleppa lúti veiðistjórn með aflamarki og hafði samþykkt efni fyrra frumvarps. Þetta eru einstaklingarnir sem vita hvað þarf að bæta innan greinarinnar og mikilvægt er að við hlustum á sjónarmið þeirra.
Við getum lengi rætt þær erfiðu aðstæður sem umræddir aðilar glíma við á hverju fiskveiðiári, en ég vil nýta tækifærið hér og spyrja hæstv. ráðherra hver næstu skref hans eru varðandi grásleppu. Hyggst ráðherra leggja fram frumvarp þess efnis að fyrirkomulag við veiðistjórn grásleppu sæti breytingum? Ef svo er, þá vil ég spyrja hvernig breytingar hæstv. ráðherra hefur í huga.