152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[15:00]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og mér finnst afar ánægjulegt að heyra að ráðherra hefur það í hyggju að hlusta eftir sjónarmiðum grásleppuútgerða og handhafa grásleppuleyfa. Það er starfsgreininni til hagsbóta að auka fyrirsjáanleika, aðgengi nýrra aðila og gera hana markvissari, líkt og ég kom inn á hérna áðan, og afar mikilvægt því að í þessari starfsgrein eru tækifærin mörg og hlutverk okkar hér á Alþingi er m.a. að stuðla að þeim. Ég vil því hvetja hæstv. ráðherra til að vinna vel í þessu máli og brýna hana til þess að vinna frekar í þessu máli því að það er þörf á breytingum í starfsgreininni, bara virkilega. Og ef núverandi ástand verður áfram við lýði gætum við horft upp á frekara brottfall innan greinarinnar ásamt takmarkaðri nýliðun sem er alvarleg staða. Þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til að vinna þetta frekar.