152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[15:48]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil enn og aftur draga fram að ávinningur af kvótakerfinu verður ekki mikill meðan þjóðin er ekki búin að fá sinn réttmæta hlut. Þannig er hægt að gagnrýna kvótakerfið og ég gagnrýni það fyrst og fremst út frá því. Þjóðin eru ekki búin að fá sinn hlut. Útgerðin er búin að fá sinn hlut en bæði þjóðin og í rauninni sjómenn líka eiga eftir að fá sinn sanngjarna hlut því að þeir mælikvarðar sem við erum að nota innan kvótakerfisins og í samningum á milli sjómanna og útgerðar eru ekki réttir. Þetta vitum við m.a. af því hver viðmiðin eru á lönduðum afla, ísprósentu o.s.frv. Ég ætla ekki að fara út í þau atriði hér. En meðan kvótakerfið skilar ekki réttindunum til þjóðarinnar er það ekki fullkomið kerfi.

Þegar kemur að nýtingu fiskstofna get ég ekki annað sagt en að við verðum að treysta vísindunum. Við verðum að treysta Hafró. Ég velti fyrir mér með þá sem eru á móti kvótakerfinu: Eruð þið þá á móti því að við förum að ráðgjöf Hafró? Ég er ekki að segja að það sé endilega málið en það er verið að draga fram hér 220.000 tonn sem voru veidd á sínum tíma og er sambærilegt núna, mig minnir að við höfum meira að segja farið niður í 130.000 tonn 2008. Það var mikið áfall en við náðum að vinna okkur upp úr því, m.a. á grunni vísindalegrar ráðgjafar. Ég tel að kvótakerfið hafi skilað því að ef við notum sama afla þá erum við að fá meiri verðmæti í dag, þessi 220.000 tonn, heldur en við fengum á sínum tíma fyrir þau 220.000 tonn sem við veiddum núna. Af hverju? Af því að það er verið að nýta aflann betur. Við erum að fá meira á hvert kíló í dag en við fengum þá. Það er allt upp í 80–82% nýting á hverjum fiski sem er landað miðað við að á sínum tíma voru það um 50–60%. (Forseti hringir.) Það er því gríðarlegur munur og hvati í kerfinu til þess að nýta betur auðlindina. En eftir stendur að þjóðin á eftir að fá sitt og við hættum ekki fyrr en hún fær það.