152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[15:51]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er eins og þar stendur. Ég velti því fyrir mér hvort við séum að slá hérna í nýja Verbúð, hvort önnur sería Verbúðarinnar verði um þá gjörninga sem eru hér á ferðinni akkúrat núna, byrjunina á áframhaldandi samþjöppun með áframhaldandi tilfærslu á auðæfum okkar í kringum landið, til fárra útvalinna sægreifa sem munu framselja eða leigja eða hvað annað sem er.

Nú þekkjum við öll þessi 5,3%, þennan pott sem er til úthlutunar fyrir strandveiðarnar. 1.400 tonn af þeim 8.500 tonnum eru rækju- og skelfiskbætur, rækjubætur, t.d. þar sem innfjarðarækja hefur ekki verið veidd svo árum skiptir. En þrátt fyrir það eru einstaklingar sem voru á rækju fyrir mörgum árum að fá sínar rækjubætur, bara reglulega, þeir eru bara með ávísun á það, hvorki meira né minna. Þeir eru ekki einu sinni með úthald. Margir eiga ekki einu sinni bát. Þvílík stjórnun. Þvílík óráðsía í þessu sem og öðru. Þvílík vanvirðing, virðulegi forseti, við landsmenn alla og auðlindina okkar sem á að heita að við eigum sameiginlega.

Koli, hugsa sér, koli sem veiðist sem meðafli og ég veit ekki um einn einasta bát sem sérstaklega er gerður út á sandkola, ekki einn, en ég veit að koli er meðafli og mikið er nú yndislegt að borða steiktan kola í brúnni sósu að hætti mömmu. Mikið er nú skemmtilegra að hafa hann á pönnunni heima en að henda honum í hafið ónýttum, vannýttum eins og verður gert ef þetta frumvarp nær fram að ganga.

Ég segi, virðulegi forseti: Við fengum Verbúðina og ég þakka fyrir hana svo sannarlega vegna þess að hún vakti okkur upp af þeim doða sem við erum búin að vera í allan þennan tíma frá því að kvótakerfið var sett á. Vísindalega þetta og vísindalega hitt og Hafró — þá ætla ég bara að benda á að síðast í fyrra vor týndi Hafrannsóknastofnun þriðjungi þorskkvótans, hann bara gufaði upp. Það var ekki í fyrsta skiptið og ekki í eina skiptið þannig að vísindin eru ekki 100% óskeikul.

Eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson bendir réttilega á vorum við að veiða svo mörgum, mörgum sinnum meira áður en þetta kerfi var sett á til að vernda fiskstofnana sem talið var að væru í mikilli hættu. Gott og vel. En á sama tíma, hvað gerðum við? Þá losnuðum við við mörg hundruð erlendra skipa úr lögsögu okkar sem voru búin að vera að skrapa upp aflann okkar örugglega í meira mæli en Íslendingar sjálfir. Það verður kannski líka að líta á heildarmyndina. Hvernig stendur á því að okkur hefur ekki auðnast sú gifta sem sérfræðingarnir lögðu upp með hjá Hafró þegar kvótakerfið kom á; að með því að kvótasetja eða binda veiðarnar við ákveðið magn hverju sinni þá munum við efla fiskstofnana svo sannarlega og þegar upp er staðið ætti aflinn a.m.k. að hafa tvöfaldast á fimm til átta árum, hann ætti a.m.k. að ná í 500.000 tonn. Hér erum við árið 2022, enn með okkar ríflega 200.000 tonn og ekki tonni meira eins og í fyrra þegar Hafró var búin að gefa út afla og týndi þriðjungnum af þorskstofninum. Þá varð jú að draga úr heimildinni í fiskinn.

En það er verulega athyglisvert að sjá hvernig þetta er tekið skref fyrir skref, hvernig verið er að kvótasetja hverja tegundina á fætur annarri og til hvers? Það er algerlega óskiljanlegt til hvers, nema einungis ef það er til að koma henni á fárra hendur eins og nú er og lofa þeim að halda áfram að gambla með sameiginlega auðlind þjóðarinnar eins og nú er gert. Við fáum ekki brotabrot af þeirri rentu sem kemur af sjávarauðlindinni, ekki brotabrot, og ef við gætum nefnt það hvernig er verið að fara með sjómennina okkar, hvort heldur það er til strandveiða eða á stærri skipum til úthafs. Strax við aflann eru 30% tekin fram hjá skiptum. Mér finnst ástæða til að ítreka að þegar togari kemur að landi kaupir hann oft aflann af sjálfum sér mun ódýrara en hann selur sjálfum sér hann seinna og kemur svo öðruvísi í gegnum hitt og þetta félagið hingað og þangað og úti um allar koppagrundir. Þá er mjög athyglivert, í orðsins fyllstu merkingu, að sjá að af 100% afla eru 30% tekin fram hjá skiptum, 70% skiptast síðan með útgerðinni og sjómönnunum sem fá af þessum 70% um 28–34% en þeir eru líka skikkaðir til að greiða olíugjald með skipunum. Þeir eru líka skikkaðir til að greiða umbúðakostnað, og það nýjasta og það furðulegasta sem kom fyrir nokkrum árum síðan var að þá voru þeir líka skikkaðir til að taka þátt í nýsmíði. Hugsið ykkur. Í dag búum við við tvöfalt vigtakerfi þar sem í rauninni er alveg ótrúlegt hvað getur munað miklu eftir því hvort útgerðaraðilarnir sjálfir eru að vigta aflann sinn eða það er gert af hlutlausum aðila.

Þessi þrautaganga samfélagsins í kringum sjávarauðlindina okkar er orðin sárgrætileg og var það fyrir langa löngu síðan. Verbúðin sýnir það og sannar og hún kveikir upp í rauninni allt það sem áður var og okkur veitti ekki af að rifja upp. Það skyldi þó ekki vera, virðulegi forseti, að við yrðum allt í einu einir af aðalleikendunum í nýrri Verbúð sem örugglega á eftir að vera sett á laggirnar, því það er í þessum sal sem allar þessar ákvarðanir hafa verið teknar, hvort sem það var til góðs eða ills. Ég kalla það til ills þegar við höfum horft upp á það hvernig sjávarplássin okkar hafa hreinlega þurrkast upp og núna heyra flest þeirra til þess sem við köllum brothættar byggðir. Samt, virðulegur forseti, er verið að ströggla gegn því að gefa þessum litlu sjávarplássum tækifæri á því að stunda strandveiðar, handfæraveiðar á smátrillum með krók.

Ég vil leyfa mér að halda að þetta frumvarp sé ekki búið til af hæstv. matvælaráðherra nema að hluta til. Hún kemur og flytur það hér en hefur fengið það í hendurnar frá einhverjum allt öðrum. Ég trúi því ekki að Vinstrihreyfingin – grænt framboð — eins og þau hafa talað, með strandveiðum, með sjávarútvegi, með brothættum byggðum og með því að ganga harkalega fram gegn okkur sem eigendum að sjávarauðlindinni — vilji kvótasetja meira af aflanum í sjónum en nú þegar er gert. Við megum þakka fyrir ef maður getur farið með stöng út á hafnargarð og veitt sér sporð í matinn án þess að vera hnepptur í varðhald fyrir það. Slíkar og þvílíkar eru hömlurnar orðnar að allt sem heitir frelsi, atvinnufrelsi, gleðin í kringum það að vera t.d. í sjávarplássi, þetta er allt farið eins og það leggur sig. Hvað skyldu nú þessar stóru útgerðir vera búnar að maka krókinn sem eiga orðið landið og miðin? Í raun og veru er varla til það fyrirtæki á Íslandi í dag sem sægreifi hefur ekki náð að kaupa hlutabréf í eða er búinn að söðla undir sig að stórum hluta. Þannig er Ísland í dag og þá er ég ekki að tala um hvernig þeir hafa þeysireist út um allan heim og eru búnir að koma sér upp veldi úti um allan heim fyrir okkar peninga, fyrir okkar auðlind, fyrir sameiginlega auðlind þjóðarinnar. Hvað fáum við fyrir það? Jú, virðulegi forseti, auðlindagjaldið var lækkað. Við höfðum fengið ríflega 11 milljarða en núna held ég að við séum að fá í kringum 5 á ári. Þetta eru smáaurar, virðulegi forseti. Það er þingheimi og ráðamönnum til ævarandi skammar að þeir skuli ekki grípa inn í og gera það strax. Það er komið nóg.