fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Þegar efnahagslífið styrkist og landsframleiðslan eykst styrkjast tekjustofnarnir. Það verða fleiri krónur. Þess vegna sagði ég hér áðan í mínu fyrra svari að við yrðum að skoða þetta í samhengi við þá útgjaldaaukningu sem orðið hefur til flestra málaflokka hins opinbera á undanförnum árum og frá þeim stað ætlum við að byggja. Það þýðir hins vegar ekki að það verði ekki einhver önnur verkefni til þess að ná fram stefnumiðum ríkisstjórnarinnar sem birtast í stjórnarsáttmála, um endurskoðun ýmissa kerfa, verkefni sem mögulega hafa runnið sitt skeið og við munum hætta að leggja fjármuni til eða annarra þátta sem við viljum gera betur, að við getum ekki náð þeim markmiðum okkar með stækkandi efnahagslífi. En grundvallaratriðið er þetta: Fjármálastefnan, framkvæmd ríkisfjármála, verður að styðja hér við stöðugleika, verður að styðja hér við vöxt þannig að við náum þeim markmiðum okkar sem við setjum okkur, m.a. um fjárfestingar.