152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[17:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara segja að það sem hv. þingmaður nefnir hér, að ekki sé tekið tillit til öldrunar þjóðar og fjölgunar í þeim hópi, er einfaldlega rangt. Þær spár eða sú þróun næstu ára á gildistíma þessarar stefnu er þar inni nákvæmlega eins og þær tölur liggja fyrir. Efnahagur dróst saman skyndilega 2019 og við þurfum ekkert að rekja þær ástæður hér. Við höfum ekki sagt að það áfall sem varð 2019 hafi ekki komið ríkisfjármálunum í þröngar skorður, en meginhlutverk okkar í gegnum þessa óvæntu kreppu sem við höfum siglt í gegnum hefur verið að verja atvinnutækin og fyrirtækin, fólkið og afkomu þess og síðan að efla þær stofnanir og þau kerfi sem við höfum bætt í á undanförnum árum og í gegnum þessa kreppu. Þess vegna ítreka ég aftur, virðulegur forseti: (Forseti hringir.) Við erum að byggja á uppbyggingarstarfi seinasta kjörtímabils í þessari fjármálastefnu.