fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegur forseti. Einn meginþáttur hækkandi vaxta er ósjálfbærni ríkissjóðs og eftirspurn ríkissjóðs eftir lánsfé. Þess vegna held ég að markmið um stöðvun skuldasöfnunar árið 2026 sé grundvallaratriði í því hvernig við horfum á þróun vaxtastigs hér í landinu. Ég vil líka minna á það, virðulegi forseti, að vaxtastig Seðlabankans í dag er orðið áþekkt því eða það sama og var í upphafi kórónuveirunnar, það er nú ekki hærra en það að þessu sinni. Það er síðan hlutverk ríkisfjármálanna og samspil ríkisfjármála við peningastefnuna og hlutverk Seðlabankans að gæta hér að því jafnvægi að krónan styrkist ekki um of þannig að það geri öðrum atvinnuvegum erfitt fyrir. Það er það jafnvægi sem m.a. þarf að vera undirbyggt í skýrri sýn í ríkisfjármálum. Það er mitt svar við því.