152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[17:39]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. varaformaður fjárlaganefndar hefur hér hafnað því sjónarmiði fjármálaráðs að það sé ákveðið misræmi milli stjórnarsáttmála og fjármálastefnu. Í álitsgerð fjármálaráðs segir orðrétt: „Í stjórnarsáttmálanum koma oft fyrir orð eins og efla, styrkja og bæta. Þau gefa til kynna að útgjöld skuli aukin fremur en hitt.“ Í þessari fjármálastefnu er hins vegar gert ráð fyrir alveg gríðarlegu útgjaldaaðhaldi á næstu árum. Við erum að tala um að raunvexti útgjalda á hverju ári verði haldið svona einhvers staðar í kringum 0,7%. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann: Þegar talað er um það í stjórnarsáttmála að efla styrkja og bæta, þegar talað er um að byggja upp samgönguinnviði, þegar talað er um aukin réttindi í almannatryggingakerfinu, aukna þjónustu við börn, er þá verið að tala um eitthvað allt annað en að leggja vegi, fjölga stöðugildum til að vinna niður biðlista eða bæta kjör fólks í almannatryggingakerfinu? Hvað er þá verið að tala um? Hvaða merkingu leggur hv. þingmaður í þessi orð í stjórnarsáttmálanum?