fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegur forseti. Ég vil nú ekki nota orðið bókhaldsbrellur í þessu sambandi einfaldlega vegna þess að eftirspurn eftir arðsemi samgönguframkvæmda gera þau líka að áhugaverðum ávöxtunarkosti fyrir fjármuni sem þarf að koma í vinnu. Hvar mun aðhaldið lenda? Ég vil bara ítreka það, virðulegi forseti, að við erum að koma út úr fordæmalausum útgjaldavexti og í fjármálastefnunni er ekki boðað aðhald. Það hefur verið boðaður vöxtur. Það er boðuð stöðvun skuldasöfnunar. Það er stefnan sem við erum að ræða hér. Þannig að það er algerlega rangtúlkun í mínum huga, virðulegur forseti, að það munu verða einhver uppskurður og sérstakar aðhaldsaðgerðir að einhverjum einstökum kerfum hins opinbera. Ég hafna þeim málflutningi.