152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[17:44]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti 1. minni hluta um þingsályktunartillögu um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Við hefðum í eðlilegu árferði verið að ræða þetta í nóvember áður en við samþykktum fjárlög en það er svo sem annað mál og snýr kannski að verklagi í tengslum við lög um opinber fjármál og ríkisstjórnarmyndun.

Orðið hefur umhugsunarverð þróun í velferðarsamfélagi okkar allt frá síðustu kreppu, í að verða 14 ár. Reynslan af kreppunni 2008 varpaði ljósi á mikilvægi þess að halda samfélaginu gangandi þrátt fyrir erfiða stöðu ríkisfjármála. Lærdómurinn á heimsvísu var dýrmætur. Niðurskurður er ekki leið út úr kreppu. Yfirborðsútreikningar á fjármálahliðinni geta ekki verið frumforsendur ákvarðanatöku eftir svona stór átök í samfélaginu. Skuldir er að finna á fleiri stöðum en í opinberu bókhaldi ríkisins. Hvernig samfélag við afhendum ungu fólki og komandi kynslóðum þarf að taka með inn í myndina. Hvar er sparað til að draga úr bókhaldslegum skuldum og hvað þýðir slíkur sparnaður fyrir kynslóðaójöfnuð og byrði og tækifæri komandi kynslóða?

Skilningur hefur aukist á síðustu árum á áhrifum niðurskurðar, hvernig hrörnandi innviðir, bæði efnislegir og félagslegir, draga úr getu fólks til að sækja fram, draga úr virkni fólks og veikja þannig grunninn sem samfélagið stendur á. Hvernig hinar svokölluðu „erfiðu ákvarðanir“ í niðurskurði eða vanfjárfestingu geta raunverulega verið „rangar ákvarðanir“.

Þegar kórónuveirufaraldurinn skall á á Íslandi var umræða um halla ríkissjóðs og bókhaldslegar skuldir strax yfirráðandi. Öll umræðan snerist um fjárhagsáfallið sem dundi á ríkissjóði. Þeirri umræðu hafa þó nær alltaf fylgt þær viðbótarupplýsingar að viðbrögðin við þessari krísu séu allt öðruvísi en síðustu þar sem niðurskurður réð ríkjum, en nú sé verið að gefa í — þetta heyrðum við síðast áðan — fjárfesta í hagkerfinu og verja velferðarkerfið. En er það svo? Stundum virðumst við gleyma hvar í ferlinu við erum stödd því að við stöndum enn þá í auga stormsins þótt veiran sjálf sé orðin veikari. Ríkissjóður var nefnilega rekinn með halla í sex ár eftir síðustu kreppu. Á árunum 2008–2013 var uppsafnaður halli ríkissjóðs 36% af landsframleiðslu. Miðað við núverandi áætlanir stjórnvalda verður ríkissjóður rekinn með halla í sjö ár frá og með fyrsta ári kórónukreppunnar og uppsafnaður halli eftir þetta ástand rúmlega 30% af landsframleiðslu. Þetta er ekkert ósvipað.

Það er ekki augljóst af þessari tölfræði að þrátt fyrir að við séum að sigla inn í þriðja ár þessarar ríkisfjármálakreppu og hér verði halli næstu árin muni enginn niðurskurður eiga sér stað og eigi sér ekki nú þegar stað. Í áfallastjórnun getur nefnilega reynst auðveldara að fela stórpólitískar ákvarðanir um undirliggjandi rekstur samfélagsins af því að ekki gefst tími til að tala um raunverulegu pólitíkina sem er allsráðandi.

Ríkissjóður var sem fyrr segir rekinn með halla í sex ár eftir síðustu kreppu og þar með meiri halla en talið er að muni myndast í þessari kreppu. En á sama tíma var verulegur niðurskurður og sérstaklega undir lok þess tímabils og á þeim árum sem eftir komu þar sem var barist við að skila jákvæðri fjárhagslegri afkomu og það hratt. Undirliggjandi efnahags- og samfélagspólitík kemur nefnilega í ljós á næstu árum, ekki á fyrstu árum kreppunnar. Erfiðu ákvarðanirnar eru ekki endilega teknar í viðbragðinu af því að viðbragðspólitík er sjálfgefnari. Nú fer nefnilega að sjást hverjir synda naktir þegar við förum að ræða um grunninn, kerfin og framtíðina.

Talsvert hefur borið á þeirri skilgreiningu á núverandi ríkisstjórn að hér sé um sístöðustjórn að ræða. Afturhald, íhald, ekkert breytist — en ég er ekki sammála því. Raunverulegar breytingar hafa nefnilega verið gerðar á undanförnum árum, hægfara breytingar í krafti þessa stjórnarfars sem hafa að miklu leyti farið fram hjá almenningi. Vandinn er sá að við ofmetum oft hversu mikil áhrif er hægt að hafa á einu til tveimur árum, jafnvel kjörtímabili, en vanmetum hversu ótrúlega miklar breytingar geta átt sér stað á áratug. Nú er næstum áratugur frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar tók við árið 2013 og þeirra efnahagsstjórn hefur ráðið ríkjum alla tíð síðan. Andlit ríkisstjórnarinnar hefur breyst en staðreyndin er sú að þeir sem stýra efnahagsmálunum, fjármálunum, stýra velferðarmálunum. Ekki allar breytingar kosta peninga en alvörubreytingar verða ekki ef fólk ber ekki skynbragð á hvernig efnahagspólitík er rekin. Og sú pólitík hefur verið hægri pólitík í að verða áratug.

Afleiðingar þessara hægfara breytinga eru farnar að sýna sig. Íbúðamarkaðurinn er í engu samhengi við samfélagslegar þarfir. Heilbrigðiskerfið er rekið á plástrum, skammtímafjárveitingum, því að grunnurinn þar hefur verið skertur í takt við ríkisfjármálapólitíkina undanfarinn áratug. Jaðarsetning öryrkja er að ná hámarki þar sem við göngum í gegnum enn ein áramótin þar sem kjaragliðnun eykst á milli öryrkja og fólks á almennum vinnumarkaði. Peningarnir virðast ekki til. Hallinn á rekstri ríkissjóðs er þrautseigur næstu árin en sjaldan er talað um undirliggjandi ástæður þess. Það er nefnilega kerfisbundin vanfjármögnun til staðar.

Strax á þessu ári verða útgjöld ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu orðin aðeins lægri en þau voru að meðaltali á árunum 2016–2019 þegar ríkissjóður var að komast á lygnari sjó eftir kreppuna 2008. Frá 2019 höfum við lent í kórónuveirufaraldrinum, erum enn þá með innviðaskuldirnar á bakinu frá síðustu og þarsíðustu ríkisstjórn, höfum safnað loftslagsskuldum og enn ekki gert við göt í velferðarkerfinu okkar en ríkisútgjöld sem hlutföll af hagkerfinu á þessu ári verða samt lægri að meðaltali en á árabilinu 2016–2019. Hallinn á ríkissjóði undir lok spátímabilsins, 2026, er því ekki vegna þess að engum böndum hafi verið komið á útgjöldin. Þvert á móti verða útgjöldin þá 29% af landsframleiðslu, þau lægstu á öldinni, og sömu sögu má segja ef sveitarfélögunum er bætt við.

En af hverju er þá halli allt til ársins 2026? Það er tekjuhliðin sem er brostin. Um þá hlið er aldrei talað nema kannski í tengslum við markmið ríkisstjórnarinnar um að lækka skatta. Það markmið er eiginlega aldrei sett í samhengi við hvað teljist eðlilegt tekjustig til að halda úti norrænu velferðarríki, hvað þá hvort hér á landi eigi við einhvers konar smæðarálag af því við þurfum jú ákveðna yfirbyggingu líkt og fjölmennari lönd. Núverandi spár ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir lágum tekjum ríkissjóðs næstu árin og 2026 verða þær þær lægstu á öldinni, í 28%. Ef við tökum tekjur sveitarfélaga með verða tekjur hins opinbera 39% 2026 og ef frá eru talin fyrstu tvö árin eftir fjármálakreppuna 2008 er þetta lægsta prósentan á öldinni.

Hvað veldur? Annars vegar er um að ræða grunnbreytingar á tekjustoðum ríkisins, skattalækkanir og lækkanir á vöru- og þjónustugjöldum. Í staðinn fyrir að hliðra skattbyrðinni til er um hreina minnkun á tekjum að ræða miðað við hagkerfið. Það er bara pólitík sumra flokka, gott og vel. En vandamálið er, eins og ég sagði áðan, þegar reynt er að reka velferðarríki sem er samanburðarhæft við norrænu ríkin undir svona pólitískri stefnu.

Fjármálaráð bendir á þetta í umsögn sinni um fjármálastefnu. Það má líka sjá þetta í umsögn Alþýðusambandsins og BSRB. Hjá fjármálaráði er talað um að undirliggjandi afkoma árið 2019 hafi þá þegar verið orðin neikvæð um 2,2% af landsframleiðslu. Afkomuhorfur ríkissjóðs út tímabil þessarar fjármálastefnu eru því langt í frá aðeins undir áhrifum af kórónuveirufaraldrinum. Fjármálaráð nefnir að styrkja verði tekjuöflunina eða minnka útgjöld. Hið síðarnefnda virðist hins vegar ekki vera í takti við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og það er ljóst af lestri fjármálastefnunnar að reksturinn sem ríkisstjórnin boðar næstu árin er ekki í takti við málflutninginn í dag. Það er siglt undir fölsku velferðarflaggi. Fjármálaráð vekur líka athygli á nákvæmlega þessu misræmi í orðum stjórnarliða, texta í stjórnarsáttmála og svo þeim tölum sem birtast í fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Á því er beinlínis haft orð að samhljóm skorti milli stjórnarsáttmála og stefnu. Í þessu samhengi má benda á athugasemd frá hinu sama fjármálaráði um mikilvægi þess að stefnumörkunin sem fylgi í lögum um opinber fjármál sé raunsæ. Fram kemur í umsögninni, með leyfi forseta, að það „væri ákjósanlegt að draga saman stjórnmálalegar og fjármálalegar áherslur til að gefa skýrt til kynna hvernig stjórnvöld hafa hugsað sér að framfylgja stefnumiðum sínum næstu fjögur árin.“

Til marks um það misræmi sem er á milli stjórnarsáttmála og fjármálastefnu má vitna til að mynda í útreikninga fjármálaráðs sem benda til þess að áætlaður raunvöxtur útgjalda í fjármálastefnunni verði 2,6% á þessu tímabili, 2022–2026, á meðan hagkerfið vex um 10%, 0,7% raunaukning á ári. Alþýðusambandið bendir á að hvergi sé fjallað um það í greinargerð með stefnunni hvað árleg raunaukning upp á 0,7% hafi í raun í för með sér fyrir opinbera velferðarþjónustu. Þar kemur fram að, með leyfi forseta:

„að öllu jöfnu hækki opinber útgjöld þótt þjónustustigið haldist óbreytt, t.d. vegna launahækkana. Það er erfitt að sjá hvernig jafn lágur útgjaldavöxtur geti staðið undir velferðarkerfinu og því eru vísbendingar um að þar geti komið til skerðinga.“

Jafnframt segir í umsögn ASÍ, með leyfi forseta:

„Í greinargerð með fjármálastefnu kemur fram að stefnt er að því að auka aðhald á næstu árum með það að markmiði að draga úr þenslu í hagkerfinu. Umfjöllun um tekju- og gjaldastefnu sýnir með skýrum hætti að aukið aðhald mun fyrst og fremst koma fram á útgjaldahliðinni. Það þýðir að aðhaldið í stefnunni byggir á því að velferðarkerfið verði notað sem helsta hagstjórnartækið.“

Þetta er algerlega úr takti við orðræðuna í stjórnarsáttmála þar sem er gefið í skyn að verið sé að ráðast í stórsókn í velferðarmálum.

Þessi pólitíski vinkill á stefnu, sem er oft stillt upp sem einhverju teknókratísku plaggi, skiptir máli af því að skulda- og afkomureglur hljóta alltaf að vera settar á grundvelli ríkisfjármálastefnu sem þarf að vera skýr. Hvers konar hlutverk ætlum við ríkissjóði í hagkerfinu? Það er nefnilega alls kostar óljóst hvernig verður fyllt út í ramma þessarar fjármálastefnu í vor í fjármálaáætlun.

Lög um opinber fjármál eiga að stuðla að stöðugleika og sjálfbærni í rekstri. Viðmiðin eru afkoma og heildarskuldir. Leiðarljós fjármálastefnunnar er að hækkun á skuldum hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu stöðvist árið 2026. Það er líka tekið fram að landsframleiðslan verði við framleiðslugetu á þessu ári og þess vegna þurfi að draga úr sértækum stuðningi við einstaklinga og fyrirtæki. En í þessari greinargerð er ekkert fjallað um ójafnvægið sem er til staðar í hagkerfinu og getur bókstaflega aftrað vaxtargetu þess til lengri tíma og þar með gert hinu opinbera mjög erfitt fyrir þegar kemur að því að halda skuldahlutfallinu sjálfbæru. Það er bara talað um áherslu á að draga úr stuðningi hins opinbera við hagkerfið, tempra þensluna í hagkerfinu, en engin umfjöllun um hvernig eigi að forgangsraða fjármunum á tímabilinu til að draga úr því ójafnvægi sem hefur skapast.

Það er öllum ljóst að eignaverðshækkanir hafa skapað ójafnvægi auk þess sem hópur fólks líður sérstaklega fyrir eftirköst þessarar veiru. Það er mikil verðbólga til staðar og ljóst að eðli útgjalda hins opinbera mun skipta sköpum á næstu árum. Þrátt fyrir þetta virðist engin vinna vera í gangi innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins við að greina þensluáhrif einstakra útgjaldaflokka og forgangsraða þannig verkefnum og fjármagni til að draga úr ójafnvægi í hagkerfinu. Þó hafa reyndar birst greiningar á nýsamþykktum úrræðum ríkisstjórnarinnar sem meiri hluti fjárlaganefndar samþykkti milli jóla og nýárs, sem benti til þess að um mjög slæma forgangsröðun væri að ræða. Hér er átt við samþykkt á úrræðinu Allir vinna sem bætti 7 milljörðum kr. við halla ríkissjóðs og er ein af ástæðunum fyrir því að endurskoða þurfti þessa fjármálastefnu áður en hún kom aftur inn í þingið nokkrum vikum eftir hún var lögð fram. Hér fór meiri hluti fjárlaganefndar gegn ráðum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og samþykkti fjárveitingu sem hefur þensluhvetjandi áhrif á hagkerfið og bætir því í verðbólguna og dregur þess vegna úr svigrúmi til að vinna á móti öðru ójafnvægi í hagkerfinu.

Þá er tekið fram í greinargerð fjármálastefnu að stöðvun á skuldahlutfalli sé nauðsynleg til að byggja upp svigrúm til að mæta auknum útgjöldum vegna fyrirsjáanlegra lýðfræðibreytinga. Í greinargerðinni kemur fram að minni hagvöxtur muni draga úr skatttekjum að óbreyttu og því þeim útgjöldum sem ríkið getur staðið undir til lengdar. Þá kalli lægri framleiðnivöxtur og öldrun þjóðar á aukin útgjöld. Ályktað er að þessar langtímabreytingar séu þess eðlis að koma þurfi böndum á hækkun skuldahlutfalls hins opinbera og mynda svigrúm til útgjaldanna þegar fram í sækir.

Þessu tengt kemur líka fram í greinargerð með stefnunni að samsetning tekna hins opinbera muni líklega breytast einmitt þess vegna, vegna þess að skattbyrði sé að færast og breytast. Hún muni, eins og fram kemur í greinargerðinni, færast frá launum yfir á neyslu þar sem skattstofnar sem byggjast á tekjum og launum vaxi hægar en íbúafjöldi þar sem hlutfallslega færri verða á vinnumarkaði. Það er mjög áhugavert að sjá þessa framsetningu, líkt og um kaldar staðreyndir sé að ræða. Neysluskattar eru í fyrsta lagi allt öðruvísi en skattar á laun af því að þeir eru flatir. Í eðli sínu eru þeir til þess fallnir að draga úr jöfnuði í samfélaginu af því að þeir leggjast þyngst á fólk á lágum tekjum. Svo virðist sem ríkisstjórnin sé því að boða grundvallarbreytingu á skattkerfinu sem er í átt til ójafnaðar án þess eiginlega að neitt fari fyrir því.

Í öðru lagi er hvergi minnst á aðra tegund skatta, svo sem eignarskatta, þrátt fyrir umræðu víða erlendis um aukinn eignaójöfnuð fremur en tekjuójöfnuð. Þá er áhugavert að ekkert er fjallað um skatta á fjármagn líkt og var gert í stjórnarsáttmála. Þetta er bara enn eitt dæmið um að stjórnarsáttmáli og rekstraráætlanir þessarar ríkisstjórnar fara einfaldlega ekki saman.

Í endurmati á fjármálastefnunni eftir að breytingar voru gerðar á fjárlögum fyrir árið 2022 var gert mat á skuldastöðu ríkissjóðs fyrir áramót. Þá kom fram að það þurfti að bæta 2% við skuldastöðuna í fjármálastefnunni. Þá versnar afkoman fyrir þetta ár núna um hálft prósent af vergri landsframleiðslu, m.a. vegna útgjaldanna sem bættust við núna milli jóla og nýárs.

Fram kom í máli fjármála- og efnahagsráðuneytisins að afkoman versni um 14 milljarða kr. aukalega en þar af væru hátt í 9 milljarðar sem væru varanleg aukning út tímabilið. Þetta er breytingin sem er að koma núna inn í tillögum. Þetta er sirka 0,3% af vergri landsframleiðslu. Þrátt fyrir þessar breytingar sem duttu inn undir lokin er ekki gert ráð fyrir að afkoman eða skuldastaðan versni á komandi árum, þ.e. eftir þetta ár. Hvað þýðir það? Jú, hér er um innbyggðan niðurskurð að ræða upp á 9 milljarða sem bætast nú við rammann sem ríkisstjórnin vinnur eftir, nema það stefni í auknar skatttekjur á tímabilinu og eitthvað breytist í þeirri stefnu. Ekkert er þó fjallað um þau áform í fjármálastefnunni og það kom líka fram í samræðum við fjármála- og efnahagsráðuneytið að útfærsla á aðhaldsaðgerðum á gjalda- og tekjuhliðinni kæmi ekki fram fyrr en í fjármálaáætlun í vor. Í því samhengi er vert að vekja athygli á því að í síðustu fjármálaáætlun sem birtist fyrir tæpu ári, þar sem boðaðar voru aðhaldsaðgerðir út tímabilið, kom samt hvergi fram hvar slíkt aðhald myndi birtast. Ég geri mér því miklar vonir um að við munum sjá breytt verklag í næstu fjármálaáætlun.

Þess má geta að fjármálaráð bendir einmitt á í umsögn sinni að athugavert sé að í síðustu fjármálaáætlun hafi verið lagðar línur um afkomubætandi ráðstafanir en þær verið tilgreindar án þess að sundurliða hvernig það yrði gert. Var tekið fram að ráðstafanir gætu mögulega skipst jafnt milli útgjalda- og tekjuhliðar en ekki með hvaða hætti. Fjármálaráð gerir athugasemd við þetta og segir að framsetning fjármálastefnu sé eins núna en hljóti þó að vera til marks um að fjármála- og efnahagsráðuneytið sýni á spilin varðandi áherslur núna í fjármálaáætlun. En það kemur samt mjög skýrt fram í umsögn fjármálaráðs að það sé alger óþarfi að skilja þetta eftir. Það hefði alveg verið hægt í fjármálastefnu að sýna með skýrari umfjöllun fram á samhengi skattkerfisbreytinga, margumrædds hagvaxtar og áforma um tekjuþróun, en því var einfaldlega sleppt.

Svo er það fjárfestingin. Ég held að taka verði alvarlega þær athugasemdir sem hafa birst frá umsagnaraðilum, þar á meðal fjármálaráði, þar sem áhyggjur eru af fjárfestingarstiginu í hagkerfinu á næstu árum og kom það meira að segja fram í áliti meiri hlutans. Í umsögn fjármálaráðs kemur til að mynda fram að fjármunastofninn hér á landi sé metinn lægri en í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Mikilvægt sé að ekki sé gengið um of á eignahlið efnahagsreiknings hins opinbera með vanfjárfestingu — þetta eru kynslóðaskuldirnar okkar — og ljóst sé að þörf sé til staðar fyrir uppbyggingu og viðhald víða. Þó að stjórnarsáttmáli feli í sér ýmis fyrirheit um uppbyggingu og fjárfestingarverkefni — og athugið að þetta eru athugasemdir frá fjármálaráði — þá virðast þau ekki endurspeglast með skýrum hætti í fjármálastefnunni.

Þá kom líka fram í máli fjármálaráðs að það hafi einfaldlega ekki tekist vel í gegnum tíðina að nota fjárfestingar sem sveiflujöfnun í hagkerfinu. Verkefnin færu hægt af stað og hættan væri sú að þegar þau færu loks af stað væri komin full fjárfestingargeta annars staðar í hagkerfinu. Í þessu samhengi virðist ljóst að mínu mati að íhuga þurfi alvarlega að endurskoða lög um opinber fjármál hér á landi eins og þau snúa að fjárfestingu. Evrópusambandið er nú að skoða svokallaða „gullna reglu“ í sínum reglum um opinber fjármál þar sem hugmyndin er að skilja fjárfestingar frá útreikningum um skulda- og afkomureglur ríkjanna þannig að svigrúm gefist til uppbyggingar eftir áralangt tímabil vanfjárfestingar, en að sama skapi koma í veg fyrir að innviðafjárfestingar og grunnuppbygging víki á tímum samdráttar, þ.e. losna undan þeirri hugmynd að fjárfesting sé gott hagstjórnartæki í ljósi þess hversu seigfljótandi hún er. Undir lok þessa kjörtímabils falla aftur í gildi fjármálareglurnar sem gætu brostið á með talsverðum þunga. Það gæti bitnað á opinberri fjárfestingu þannig að mínu mati ætti að ráðast í alvöruskoðun á svipaðri gullinni reglu á Íslandi.

Að lokum langar mig að koma aðeins inn á stöðu sveitarfélaganna vegna þess að þau falla líka undir þessa fjármálastefnu. Sú vanfjárfesting sem hér um ræðir á sér ekki aðeins stað hjá ríkinu, vandinn er í rauninni miklu, miklu verri á sveitarstjórnarstiginu. Þrátt fyrir að afkomuhorfur og skuldastaða ríkissjóðs hafi batnað verulega frá síðustu fjármálaáætlun og miðað við það sem við sjáum núna í fjármálastefnunni þá er staðan einmitt öfug hjá sveitarfélögum. Þar hafa afkomuhorfurnar versnað frá því að síðustu tölur komu út og skuldastaðan líka. Fjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu hefur fallið verulega hjá sveitarfélögum og það bendir allt til þess að núverandi fjármálastefna, sem við ræðum hér í dag, og undirliggjandi fjármálaáætlun geri ráð fyrir að fjárfestingarhlutfallið lækki allt til ársins 2026. Þetta kemur m.a. til vegna vanfjármögnunar sveitarstjórnarstigsins eftir yfirfærslu verkefna í gegnum árin frá ríki til sveitarfélaga án þess að fjármagn fylgi með. Sem dæmi má nefna málaflokk fatlaðs fólks sem var fluttur á árabilinu 2012–2013 frá ríki til sveitarfélaga og greiningar hafa bent á að þar vanti um 9 milljarða kr.

Fjárfesting sveitarfélaga hefur sögulega verið um 1,9% af landsframleiðslu en verður undir lok tímabils þessarar stefnu um 1,2% af landsframleiðslu. Þessi 0,7% munur er ígildi 20 milljarða kr. í dag. Því mætti segja að vanfjármögnun á málaflokki fatlaðs fólks skýri um helming af þessari vanfjárfestingu. A.m.k. er alveg ljóst að vanfjármögnun hefur bitnað á fjárfestingargetu sveitarfélaganna og aðra málaflokka mætti vissulega telja til í því samhengi. Hér er um að ræða eins konar niðurskurð bakdyramegin í rekstri ríkissjóðs þar sem málaflokkar eru fluttir yfir til sveitarfélaga til að hreinsa borð ríkissjóðs og bæta afkomustöðuna en á móti dregur úr getu sveitarfélaga til að sækja fram. Þetta er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að svigrúm sveitarfélaga til að bæta tekjur sínar er takmarkað af því að tekjustofnar eru fáir, ólíkt ríkissjóði, auk þess sem sveitarfélögin eiga erfiðara með að nálgast lánsfjármagn og þegar það er mögulegt er það á hærri vöxtum en ríkissjóður fær.

Virðulegi forseti. Mig langar að velta því upp í lokin til hvers stjórnmálin séu eiginlega. Mikil áhersla er í greinargerðinni um fjármálastefnu á að þar sem áföll dynji reglulega á og séu tíðari en áður sé enn mikilvægara að ríkið búi yfir nægum fjárhagslegum styrk til að mæta tíðum áföllum. Það vekur athygli í þessu samhengi að ekki sé meira fjallað um hvernig ætti þá að þróa hin opinberu kerfi, hagstjórnarstefnu, samspil við vinnumarkað og einkageirann, í þeim tilgangi að draga úr tíðni slíkra áfalla. Að ekkert sé fjallað um að ríkið sé gerandi í samfélaginu og geri atlögu að því að draga úr undirliggjandi ójafnvægi í stað þess að haga ríkisfjármálunum með varnarhætti. Sjálfbærnihugtak laga um opinber fjármál birtist því fyrst og fremst í þessari fjármálastefnu sem uppbygging fjárhagslegs styrks. Áherslan er á að bókhaldið líti vel út fremur en að styrkja getu hagkerfisins, samfélagsins og ríkisins til að takast á við viðfangsefni framtíðarinnar. Það þarf að fjárfesta í kerfi sem er ekki jafn viðkvæmt fyrir áföllum. Það þarf að sækja fram fremur en að bakka í vörn sem viðbragð við þessum stóru samfélagslegu viðfangsefnum.

Virðulegi forseti. Að lokum vil ég lesa upp sameiginlega yfirlýsingu 1., 2. og 3. minni hluta sem áheyrnarfulltrúi í nefndinni, Guðbrandur Einarsson, tekur undir:

„Lítið samræmi er á milli stjórnarsáttmála og þess reksturs sem boðaður er í fjármálastefnu út kjörtímabilið. Engin merki eru um eflingu almannaþjónustu og öflugt velferðarkerfi. Meintur vöxtur til velsældar er ekki í takti við þann ramma sem ríkisstjórnin setur sér næstu fjögur árin. Fjármálastefnan fjallar bara um áskoranir en inniheldur engar pólitískar lausnir. Það er nauðsynlegt í því samhengi að næsta fjármálaáætlun, sem kemur út síðar í vor, innihaldi pólitíska stefnumótun varðandi þær afkomubætandi ráðstafanir sem augljóst er að ráðast þarf í á næstu árum miðað við þann ramma sem ríkisstjórnin hefur sniðið sér með fjármálastefnu. Lög um opinber fjármál gera ráð fyrir gagnsæi og raunsæi í framsetningu áætlana og því ljóst að ríkisstjórnin getur ekki skilað auðu í næstu fjármálaáætlun.“