152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, sem var endurspeglun á ákveðnum pólitískum veruleika sem er einfaldlega kannski besti vitnisburður þess hvers vegna ríkisstjórnin leggur fram þessa stefnu og hv. þingmaður mælir fyrir öðrum áherslum og annarri stefnu. Mér finnst bara ágætt að við komum svona hreinskiptin til leiks í þessum efnum.

Það eru nokkur atriði þar sem ég var bara ágætlega sammála áherslum hv. þingmanns, t.d. vandinn við að beita fjárfestingum sem hagstjórnartæki. Það er einmitt sá póstur sem við erum að tæpa á í nefndaráliti okkar. En við höfum upplifað það þegar við grípum til þeirra mótvægisaðgerða að auka hér fjárfestingu að það hefur verið seigfljótandi hraun, eins og við getum nefnt, að koma þeim fjármunum í vinnu. Þess vegna er alveg ástæða til að skoða þessa ferla, ég vil alveg taka undir það, og síðan hvernig við meðhöndlum opinbera fjárfestingu varðandi fjármálareglurnar. Það er nákvæmlega þessi póstur sem við erum að benda á.

Það sem ég er aftur á móti ósammála hv. þingmanni um er að hún nefndi það í ræðu sinni að útlitið hafi skánað frá fjármálaáætlun í vor, eða þegar við lögðum hana fram í vor. Það er meiri vöxtur í efnahagslífinu en við gerðum ráð fyrir og þess vegna eru aðhaldskröfurnar, sem þar voru ekki útfærðar, eins og hv. þingmaður nefndi, orðnar mun sársaukaminni. Meginpunkturinn minn er þessi: Hér endurspeglast aðeins pólitískar áherslur. Við verðum að horfa til þeirra viðbóta eða þeirra endurbóta sem við höfum gert á helstu kerfum okkar og taka umræðuna þaðan. Það vil ég bara láta liggja hér eftir fyrir hv. þingmann að svara í fyrra andsvari, hvort það sé ekki á þeim stað sem við eigum að ræða um fjármálastefnuna (Forseti hringir.) og slíta hana ekki úr samhengi við það sem við höfum gert á undanförnum árum.