152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[18:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni, hv. varaformanni fjárlaganefndar, fyrir spurninguna. Ég er ánægð að heyra að við getum sammælst um að mögulega þurfi að fara í endurskoðun á reglum um opinber fjármál hvað varðar fjárfestingu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við horfum einmitt til þess hvað er að gerast á alþjóðavísu.

Varðandi í raun, ef ég skil þetta rétt, hvaðan við erum að koma, að við þurfum að skoða samhengið þar: Staðreyndin er sú, eins og ég tæpti aðeins á áðan, að frá 2019 höfum við lent í alls konar vandræðum sem við þurfum að vinna upp, við lentum í kórónuveirufaraldrinum og erum enn þá með innviðaskuldir á bakinu frá þarsíðustu og síðustu ríkisstjórn. Við höfum líka, eins og ég sagði áðan, safnað loftslagsskuldum. Svo erum við að eiga við þá staðreynd að til að mynda í að á tíunda ár hefur orðið kjaragliðnun milli öryrkja og fólks á almennum vinnumarkaði. Þetta eru dýrar breytingar. Munurinn á minni pólitík og þeirri pólitík sem er stunduð í flokki hv. þingmanns er kannski sá að ég vil líka bara tala um hlutina eins og þeir eru. Þetta kostar peninga. Við gerum ákveðinn samfélagssáttmála okkar á milli um að reka velferðarkerfi, að fólk greiði í samtryggingu. Það sem angrar mig er þetta velferðarflagg sem verið er að stilla upp. Ef fólk vill reka pólitík þar sem við viljum ekki vera með fullfjármagnað, norrænt velferðarkerfi, þá gott og vel. En ef verið er að auglýsa kerfið sem slíkt og ekki fjármagna það sem skyldi þegar fyrir liggur að það var fullt af hlutum sem við áttum eftir að vinna upp eftir síðustu krísu þá er það bara rangt með farið. Þannig að það er mín upplifun af þessu að það hafi verið margt, já, sem þurfti að bæta eftir síðustu krísu, 2019, þegar við lentum í þessu ástandi, og því sé ekki hægt að segja sem svo að það hafi ekkert — að grunnurinn sem við vorum að vaxa í hafi verið ágætur. Ég held að flestir hér inni viti alveg hvað er búið að ræða hér um í mörg ár að kosti pening; almannatryggingakerfi, fjárfestingar, og þetta er m.a. komið inn á í stjórnarsáttmála.