fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langaði einmitt að ræða aðeins um útgjaldastefnu. Ég er nefnilega sammála hv. þingmanni um að hún virðist kannski ekki beint vera til staðar en þarna er ákveðinn rammi sem er engu að síður mjög pólitískur. 0,7% raunaukning útgjalda ári er eins konar útgjaldastefna. Þetta er langt undir hagvexti næstu árin og þetta er í raun mjög hröð aðhaldskrafa í útgjöldum. Fólk talar um þenslu, áhyggjur af verðbólgu. Það eru aðrar leiðir til að eiga við það. Það er tekjuhliðin í því samhengi. Við vitum vissulega ekki hvernig þetta birtist. Talað er um góða grunnstöðu 2019 en mig langaði til að stilla þessu aðeins upp. 0,7% raunaukning er, eins og ég sagði áðan, 20 milljarðar. Málaflokk fatlaðs fólks skortir helming þessarar upphæðar. Þannig að ef þessi ríkisstjórn ætlaði að laga t.d. til í þeim málaflokki og bæta upp vanfjármögnun á sveitarfélagsstiginu eru 10 milljarðar farnir. Þá eru 10 milljarðar eftir á ári hverju til að framfylgja öllum stefnumálum ríkisstjórnarinnar og þar undir er ekki einu sinni talað um launahækkanir.
Mig langar því að varpa þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort hann taki undir með mér að úrræðaleysi þessa dagana hjá ríkisstjórninni í aðgerðum, mótvægisaðgerðum þegar kemur að verðbólgu og vaxtahækkunum, muni þrýsta t.d. á laun í haust og þar með þrengja enn meira stakk ríkissjóðs til að framfylgja þessari fjármálastefnu. Er þetta úrræðaleysi í dag og óvilji til að komast til að mynda undan þessum vanda ekki að vinna gegn markmiðum í fjármálastefnunni um stöðugleika hérna næstu árin? Það liggur alveg fyrir að við munum hafa mjög lítið svigrúm ef það á að virða þessa stefnu, 10 milljarða. Hvar mun þetta enda?