fjármálastefna 2022--2026.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem mig grunar varðandi útgjaldastefnuna og líka skattstefnuna er að ríkisstjórnin vilji ekki sýna á spilin fyrir komandi kjarasamninga. Það er alveg klárt mál að komandi kjarasamningar verða erfiðir og þá mun ríkisstjórnin þurfa að fara í aðgerðir varðandi útgjöld, varðandi tekjuhliðina, sem koma ekki fram í fjármálastefnunni. Ég tel að það sé raunverulega kjarnaástæðan fyrir þessu, það verði að vera friður á vinnumarkaði og þar muni hin eiginlega fjármálastefna, efnahagsstefna, koma fram sem skiptir máli. Ég tel varðandi útgjöldin og aðhaldið að það samræmist ekki því að við ætlum að reka velferðarsamfélag. Mér finnst hugtakið velferðarsamfélag vera notað hérna svolítið í plati og það samræmist ekki aðhaldi í ríkissjóði. Eins og hv. þingmaður kom að áður þá kostar velferðarkerfið, þar eru útgjöld, það þarf að fjármagna kerfið. Og ég get hvorki séð það í skattstefnu né í gjaldastefnu. Það gæti verið að það komi sem útspil í komandi kjarasamningum.