152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[18:45]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, það er hárrétt, það er búið að rjúfa þessi tengsl. Ekki nóg með það heldur verður það örugglega þannig, eins og svo oft áður, að launafólk mun þurfa að bera byrðarnar, og heimilin í landinu, líkt og gerðist eftir hrun. Við erum með þingmann sem er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og hrun heimilanna er í raun óuppgert. Þar voru heimilin í landinu látin bera byrðarnar sem og launþegar og það sama er uppi núna. Það sem maður sér líka er að það eru engin tengsl á milli fjármálastefnunnar og húsnæðismálanna. Við sjáum það einnig á skerðingum til aldraðra og öryrkja. Þessar skerðingar eru svartur blettur á íslensku velferðarkerfi og draga úr sjálfsbjargarviðleitni aldraðra og öryrkja. Og skerðingar eru líka komnar í barnabæturnar þannig að allt velferðarkerfið, ef velferðarkerfi skyldi kalla, er rekið á skerðingum. Núna munu launþegar, lántakar húsnæðislána og annarra lána, verðtryggðra lána, bera byrðarnar af verðbólgunni. Það er svo sannarlega búið að rjúfa þessi tengsl. Og hagstjórnin — þessi stefna er eiginlega ekki stefna. Þetta er eiginlega meira viljayfirlýsing hagfræðings í fjármálaráðuneytinu um að ætla að fara að byrja að greiða niður skuldir 2026. Mikið er þægilegt fyrir ríkisstjórnina að segjast ætla að gera eitthvað 2026, eftir að kjörtímabilinu lýkur. Það eru kosningar eftir fjögur ár og ríkisstjórnin sem þá kemst til valda verður ekki sama ríkisstjórn og nú er.