152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[18:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég stenst ekki mátið að koma hér upp eftir framsögu hv. þingmanns 2. minni hluta hv. fjárlaganefndar og svara nokkrum þáttum og vangaveltum sem hann var með. Í fyrsta lagi vil ég að grípa boltann þar sem hann ræddi um stefnu í samgöngumálum. Ég bið hv. þingmann að kynna sér að samgönguáætlun er sett upp með þeim hætti að það er horft til skamms tíma og það er horft til lengri tíma. Með því móti myndi ég nú segja að það sé stefna til lengri tíma í samgöngumálum. Það sem við höfum aftur á móti þurft að glíma við eftir að við ákváðum að auka fjármagn til fjárfestingar í samgöngukerfi er að hönnun og undirbúningur framkvæmda var kannski ekki á þeim stað sem við héldum. Það var úrelt umhverfismat og fleiri slíkir þættir sem hafa allir sínar skýringar. Það kennir okkur alla vega að við þurfum, og líka samgönguyfirvöldin, framkvæmdaraðilinn í þessu tilfelli, að geta treyst á áætlanagerðinni þannig að þau horfi ekki á einhver óvænt útspil í þeim efnum, mögulegan skyndilegan niðurskurð og slíkt, því að það úreldir líka til lengri tíma góða áætlanagerð.

Ég vil bara taka undir, virðulegur forseti, þann þátt sem hv. þingmaður kom hér að, að við þyrftum að fjárfesta meira í þekkingu og auka vægi hennar í efnahagslífi okkar. Það er nákvæmlega það sem þessi ríkisstjórn hefur verið að gera á undanförnum árum, auka framlög til nýsköpunar og þekkingariðnaðar. Það ætlum við að gera áfram og það er m.a. í þessari fjármálastefnu.

Virðulegi forseti. Ég vil líka benda á að sumt af því sem við ræðum hérna undir hatti fjármálastefnunnar á kannski meira heima undir fjármálaáætlun og útfærslum og áherslum í þeim efnum. En spurningin sem ég vil skilja eftir fyrir hv. þingmann er: Er það endilega best að útgjöld fylgi hagvexti?