152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[18:54]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talaði um að þessi ríkisstjórn, þingmeirihluti, ætlaði ekki að nota velferðarkerfið sem hagstjórnartæki. Ég minni bara á allar skerðingar til öryrkja og aldraða sem eru við lýði. Þær draga úr efnahagslegri virkni þessara hópa í samfélaginu og eru fátæktargildra. Það er ekki velferðarkerfi. Þessi fátæktarumræða á Íslandi er ekki komin til út af neinu. Hún er komin til út af því að hópi fólks er haldið í fátækt með tekjuskerðingum, með lágu frítekjumarki. Það getur ekki sjálft aflað sér tekna. Það er alveg með ólíkindum að flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sem trúir á einstaklinginn og framtakssemi hans, skuli stuðla að slíku skerðingarkerfi. Það sama má raunverulega segja um Vinstri græna, sem er sósíalískur, róttækur vinstri flokkur sem talar um sósíalisma og velferð. Það er alveg með ólíkindum að þeir skuli standa á bak við þessi kerfi, báðir flokkarnir, algjört hneyksli. (Gripið fram í: …Framsókn …)

Varðandi útgjöldin þá þurfa auðvitað að vera útgjöld til velferðarmála. Það þarf að taka tekjurnar, skattkerfið þarf að vera til tekjujöfnunar og tekjuöflunar og það á að flytjast yfir í velferðarkerfið. Það þarf að rekja þetta stöðugt. Það sama á við um fjárfestingarstefnuna, hún þarf að gerast hægt og rólega. Ef við ætlum að fara úr auðlindahagkerfi yfir í þekkingarhagkerfi svo við getum haldið menntuðu fólki hérna og háu launastigi þá verðum við að gera það hægt og rólega, ekki með einhverjum fjárfestingarátökum eða vegna þess að loðnan er komin eða komin vertíð eða vegna þess að einhver hafi fundið upp tölvuleik og þá eru allt í einu bara að koma jól. Þetta gerist hægt og sígandi með því að mennta ungdóminn þannig að við fáum menntafólk úr góðu skólakerfi. Það er þannig sem þetta vinnst, með þekkingu í samfélaginu en ekki með því að það koma aflahrotur eða af því að einhver bjó til nýtt app og þá eru komin jól á Íslandi.